Ein tímavél varð á vegi mínum um daginn, þetta var kassalaga kofi 3*3 fet að flatarmáli og 7 fet að hæð, með rauðum blikkandi perum á hliðinni og var hún merkt Tímavél Myglars. Ég ákvað að prófa vélina og fór inn í vélina. Inn í kofanum voru leiðbeiningar um notkun, þar stóð: Ýttu á takkann til að fara eina klukkustund fram í tímann. Ég gerði það og þá heyrðist vélræn rödd segja: Nú er klukkan 14:32, bíddu eftir hljóðmerkinu og þá verðurðu kominn eina klukkustund fram í tímann. Ég beið nokkra stund og eftir 62 mínútur þá kom hljóðmerkið, þá var tíminn 15:34, ég hafði því ferðast rúmlega klukkustund fram í tímann! En sama hvað ég reyndi, ég fann ekki út úr því hvernig ég kæmist til baka, undarlegt!
Já, eða ansi fullkomið skamtafræðilegt eintak af kóbaltplasmatímavél, en ég hef litla þekkingu á slíku!
Hmmm...hvar hef ég aftur séð þetta áður....var þetta ekki í Dilbert nýlega?
Í Dilbert, hvað er það fröken? Fagtímarit tímaferðalanga? Var einhver lausn í sjónmáli þar?
Ég er ekki frá því að ég hafi séð svipað hjá honum Dilbert (teiknimyndapersóna)... en að tímavandamálum þá eru Myglar og Vladimir aðalsérfræðingarnir í slíkum málum...
Hmmm...hvar hef ég aftur séð þetta áður....var þetta ekki í Dilbert nýlega?
mig rámaði í eitthvað svipað en kom því ekki fyrir mig. Dilbert byrjaði á þessum degi og var næstu fjóra daga að endurbæta. Síðan er ekki vitað meir. Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hef nú séð þetta líka einhvers staðar annars staðar en í Dilbert. Ekki beint það frumlegasta í heimi, en athyglisvert vandamál engu að síður. Ég kann því miður ekki að leysa það, en hef hafið óopinbera rannsókna á því og mun gera mitt besta til þess að einhver leysi það.
Ég ætlaði upphaflega að verða reiður og fúll, en nú er ég bara sár yfir þessum viðbrögðum, ég er ófrumleg hermikráka einhverrrar teiknimyndafígúru að því er virðist, þegar ég ætlaði bara að hleypa af stað almennilegum umræðum um tímavanda sem ég lenti í! Þið eruð frábær! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég veit nú ekki hver þessi Dilbert er og trúi þér þess vegna alveg og ég skil ekki að fólk sé að véfengja orð Sæma hins fróða.
Skiptir nokkru hvaðan gott kemur?
Annars hefði ég gaman af að sjá þessa tímavél, áttu nokkuð mynd af henni Sæmi minn?
Ég vil biðja friðargæsluliða hér á þessu svæði að loka þessum lélega þræði og flytja hann yfir í sorpminjasafnið, ég mun aldrei framar reyna að taka þátt í vísindalegum umræðum hér framar Ennþá sár yfir viðbrögðunum
Klappar á kollinn á Sæma Svona, svona, maður má ekki láta ein vonbrigði drepa allann móð. Ef í fyrstu ekki tekst, skal reynt, og reynt á ný! Gefur Sæma glas af Mímisbruggi Gefðu bara skít í raddirnar sem reyndu að draga þig niður og haltu ótrauður áfram!
Þetta gengur ekki, ég er ekkert sár lengur ég er bara að láta vorkenna mér eins og gömlum öldungi sæmir Þakkar vorkennið frá Drífu
Ég vil biðja friðargæsluliða hér á þessu svæði að loka þessum lélega þræði og flytja hann yfir í sorpminjasafnið, ég mun aldrei framar reyna að taka þátt í vísindalegum umræðum hér framar Ennþá sár yfir viðbrögðunum
Nei, látið endilega sjá yður hjer sem oftast, hjer vantar fleiri vísindamenn. Sjerstaklega er tilkynnt verður um úthlutun styrkja forsetaembættisins til vísindarannsókna undir lok þessa mánaðar.
Sjálfir höfum vjer verið of uppteknir við tímavjel vora til að vera mikið hjer. Þess má geta að af tímavjel vorri er mikilla tíðinda að vænta innan viku.
Klappar á kollinn á Sæma Svona, svona, maður má ekki láta ein vonbrigði drepa allann móð. Ef í fyrstu ekki tekst, skal reynt, og reynt á ný! Gefur Sæma glas af Mímisbruggi Gefðu bara skít í raddirnar sem reyndu að draga þig niður og haltu ótrauður áfram!
Of hvar komst þú yfir það? Ég hef yfirumsjón með skömmtun út Mímisbrunni.

Er með sérsamkomulag við Skapanornirnar. Bakka ekki af því væni minn! Hef fengið reglulegan skamt sendan vikulega og deili aðeins við neyðartilfelli.
Sjerstaklega er tilkynnt verður um úthlutun styrkja forsetaembættisins til vísindarannsókna undir lok þessa mánaðar..
Styrkir!? Ljómar upp og dembir sér í rannsóknir á tímasamfellum