— GESTAPÓ —
Tímavél
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
     1, 2  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 17/10/05 16:11

Ein tímavél varð á vegi mínum um daginn, þetta var kassalaga kofi 3*3 fet að flatarmáli og 7 fet að hæð, með rauðum blikkandi perum á hliðinni og var hún merkt Tímavél Myglars. Ég ákvað að prófa vélina og fór inn í vélina. Inn í kofanum voru leiðbeiningar um notkun, þar stóð: Ýttu á takkann til að fara eina klukkustund fram í tímann. Ég gerði það og þá heyrðist vélræn rödd segja: Nú er klukkan 14:32, bíddu eftir hljóðmerkinu og þá verðurðu kominn eina klukkustund fram í tímann. Ég beið nokkra stund og eftir 62 mínútur þá kom hljóðmerkið, þá var tíminn 15:34, ég hafði því ferðast rúmlega klukkustund fram í tímann! En sama hvað ég reyndi, ég fann ekki út úr því hvernig ég kæmist til baka, undarlegt!

Skall þar hurð nærri hælum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 17/10/05 20:18

‹gapir› Þetta eru galdrar!

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 18/10/05 09:30

Já, eða ansi fullkomið skamtafræðilegt eintak af kóbaltplasmatímavél, en ég hef litla þekkingu á slíku!

Skall þar hurð nærri hælum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Litla Laufblaðið 18/10/05 11:00

Hmmm...hvar hef ég aftur séð þetta áður....var þetta ekki í Dilbert nýlega?

Krúsídúlla Gestapó.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 18/10/05 11:06

Í Dilbert, hvað er það fröken? Fagtímarit tímaferðalanga? Var einhver lausn í sjónmáli þar?

Skall þar hurð nærri hælum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 18/10/05 17:32

Ég er ekki frá því að ég hafi séð svipað hjá honum Dilbert (teiknimyndapersóna)... en að tímavandamálum þá eru Myglar og Vladimir aðalsérfræðingarnir í slíkum málum...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 18/10/05 17:44

Litla Laufblaðið mælti:

Hmmm...hvar hef ég aftur séð þetta áður....var þetta ekki í Dilbert nýlega?

mig rámaði í eitthvað svipað en kom því ekki fyrir mig. Dilbert byrjaði á þessum degi og var næstu fjóra daga að endurbæta. Síðan er ekki vitað meir. ‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Gunnar H. Mundason 18/10/05 17:49

Hef nú séð þetta líka einhvers staðar annars staðar en í Dilbert. Ekki beint það frumlegasta í heimi, en athyglisvert vandamál engu að síður. Ég kann því miður ekki að leysa það, en hef hafið óopinbera rannsókna á því og mun gera mitt besta til þess að einhver leysi það.

Víkingamálaráðherra og yfiraðmíráll baggalútíska heimsveldisins • Yfiröryggisvörður Pirrandi félagsins • Yfirglímukappi • „ Nú er að verja sig, er hér nú atgeirinn“ • Cogitamus, ergo vicerunt • Nemo me impune lacessit
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 19/10/05 08:30

Ég ætlaði upphaflega að verða reiður og fúll, en nú er ég bara sár yfir þessum viðbrögðum, ég er ófrumleg hermikráka einhverrrar teiknimyndafígúru að því er virðist, þegar ég ætlaði bara að hleypa af stað almennilegum umræðum um tímavanda sem ég lenti í! Þið eruð frábær! ‹Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér›

Skall þar hurð nærri hælum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 19/10/05 15:38

Ég veit nú ekki hver þessi Dilbert er og trúi þér þess vegna alveg og ég skil ekki að fólk sé að véfengja orð Sæma hins fróða.

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 19/10/05 18:41

Skiptir nokkru hvaðan gott kemur?

Annars hefði ég gaman af að sjá þessa tímavél, áttu nokkuð mynd af henni Sæmi minn?

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 20/10/05 12:53

Ég vil biðja friðargæsluliða hér á þessu svæði að loka þessum lélega þræði og flytja hann yfir í sorpminjasafnið, ég mun aldrei framar reyna að taka þátt í vísindalegum umræðum hér framar ‹Ennþá sár yfir viðbrögðunum›

Skall þar hurð nærri hælum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

‹Klappar á kollinn á Sæma› Svona, svona, maður má ekki láta ein vonbrigði drepa allann móð. Ef í fyrstu ekki tekst, skal reynt, og reynt á ný! ‹Gefur Sæma glas af Mímisbruggi› Gefðu bara skít í raddirnar sem reyndu að draga þig niður og haltu ótrauður áfram!

- Hæstvirtur Lögfræðingur pirrandi félagsins - Þáttastjórnandi hinna sívinsælu Baggasveins og Baggasveinku þátta - Besservisser - Verndari rauðs pestós - Stofnandi og Skýjameistari H-menningarklúbbsins - Fósturmóðir Skoffíns - Unnusta Slopps -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 20/10/05 13:46

Þetta gengur ekki, ég er ekkert sár lengur ég er bara að láta vorkenna mér eins og gömlum öldungi sæmir ‹Þakkar vorkennið frá Drífu›

Skall þar hurð nærri hælum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 20/10/05 16:32

Sæmi Fróði mælti:

Ég vil biðja friðargæsluliða hér á þessu svæði að loka þessum lélega þræði og flytja hann yfir í sorpminjasafnið, ég mun aldrei framar reyna að taka þátt í vísindalegum umræðum hér framar ‹Ennþá sár yfir viðbrögðunum›

Nei, látið endilega sjá yður hjer sem oftast, hjer vantar fleiri vísindamenn. Sjerstaklega er tilkynnt verður um úthlutun styrkja forsetaembættisins til vísindarannsókna undir lok þessa mánaðar.

Sjálfir höfum vjer verið of uppteknir við tímavjel vora til að vera mikið hjer. Þess má geta að af tímavjel vorri er mikilla tíðinda að vænta innan viku.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Gunnar H. Mundason 20/10/05 17:00

Hundslappadrífa í neðra mælti:

‹Klappar á kollinn á Sæma› Svona, svona, maður má ekki láta ein vonbrigði drepa allann móð. Ef í fyrstu ekki tekst, skal reynt, og reynt á ný! ‹Gefur Sæma glas af Mímisbruggi Gefðu bara skít í raddirnar sem reyndu að draga þig niður og haltu ótrauður áfram!

Of hvar komst þú yfir það? Ég hef yfirumsjón með skömmtun út Mímisbrunni.

Víkingamálaráðherra og yfiraðmíráll baggalútíska heimsveldisins • Yfiröryggisvörður Pirrandi félagsins • Yfirglímukappi • „ Nú er að verja sig, er hér nú atgeirinn“ • Cogitamus, ergo vicerunt • Nemo me impune lacessit
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Gunnar H. Mundason mælti:

Hundslappadrífa í neðra mælti:

‹Klappar á kollinn á Sæma› Svona, svona, maður má ekki láta ein vonbrigði drepa allann móð. Ef í fyrstu ekki tekst, skal reynt, og reynt á ný! ‹Gefur Sæma glas af Mímisbruggi Gefðu bara skít í raddirnar sem reyndu að draga þig niður og haltu ótrauður áfram!

Of hvar komst þú yfir það? Ég hef yfirumsjón með skömmtun út Mímisbrunni.

Er með sérsamkomulag við Skapanornirnar. Bakka ekki af því væni minn! Hef fengið reglulegan skamt sendan vikulega og deili aðeins við neyðartilfelli.

- Hæstvirtur Lögfræðingur pirrandi félagsins - Þáttastjórnandi hinna sívinsælu Baggasveins og Baggasveinku þátta - Besservisser - Verndari rauðs pestós - Stofnandi og Skýjameistari H-menningarklúbbsins - Fósturmóðir Skoffíns - Unnusta Slopps -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 22/10/05 14:13

Vladimir Fuckov mælti:

Sjerstaklega er tilkynnt verður um úthlutun styrkja forsetaembættisins til vísindarannsókna undir lok þessa mánaðar..

Styrkir!? ‹Ljómar upp og dembir sér í rannsóknir á tímasamfellum›

Sönnun lokið.
     1, 2  
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: