Þessi þráður er stæling á Bauernregeln. Ein slík er t.d. svona:
Hat der Bauer Eine Latte
muss die Bäuerin auf die Matte.
En, hér skal stuðla rétt en bragliðafjöldi vera frjáls og rím er endarím.
Bylji regn á bóndans hári
búast má við hörðu ári.
Þarna er höfuðstafur í seinni línunni, en eins má hafa hana sér um stuðla:
Fari núna frost að herða
Baugsmenn dæmdir bráðum verða.
Hér koma bændur ekki við sögu og er það sjálfsagt. En best að byrja:
Æli bóndinn yfir diskinn
eldað hefur konan fiskinn.
Skemmtilegur þráður.
Ef í kvöld verð ekki heppinn
ekki nóg þá verið keppinn.
Vilji bóndinn bara kósí
hefur ástmey fundið fjósi í.
Eigi bóndinn engan maka
ærnar verður hann að taka.
Sjáist Ford í Fischersundi
fellur krónan gagnvart pundi.
Þegar jarmar kollótt kind
krakkinn hlær og leysir vind.
Það má nota aðra bragarhætti í sjálfu sér, en tvær línur takk. Afhending er kjörin. Hún er eins og braghenda, nema, af er ein hending.
Sjáist undir kvenna kjólum kuntur loðnar,
bóndinn hlær en rakkinn roðnar.
Þegar jarmar hyrndur hrútur
heiðagæsin fer í mútur.
Skíti bóndinn beint í vaskinn
bólgna hnén og vinstri rasskinn.
Ef að brauð í formi fellur
fyrr en varir hríð á skellur
Þegar hangir hor úr nösum
hækkar verð á fjallagrösum.