Þá er fellur fönnin hvít
feldi undir nokkuð hrýt.
Krunki hrafn við kaldan sæ
kemur júní eftir maí.
Ef mjólkin ei úr spena gefst,
brauðlaus dagur þegar hefst,
[vil minna á bragfræðina... skoðaðu rimur.is... Skabbi]
Kyssi báran kalda sker
koma jól í desember.
P.S. Sem sé, næsta víst.
Þegar gelta hundar hátt
hugsast kemur sunnanátt.
Ef maki þinn er mellufær í rúminu
mikið gaman er hjá þér í húminu
ef þokar ofar þernan svuntu
þeim mun nær er bóndi kuntu
Ef ykkur þykir þetta of dólgslegt, lesið þetta þá sem:
ef þokar ofar þernan svuntu
þeysist bóndinn heim á truntu
Runki konan sér í svefni
sækir bóndinn sleipiefni.
Eignist vinnukonan krakka
kerling bóndann lætur flakka.
Mígi bóndinn beint í koppinn,
bitri deilu við er sloppinn.
Migir þú á móti roki.
muntu hlandbragð finna í koki.
Stundi bóndin löngum lottó
lætur konan vel að Ottó.
Ef að þú ert alltaf veikur
öll mein læknar njólareykur.
Þó að vindur vaskur kæli
varla bóndi fer á hæli.
Finni blessuð frúin ljáinn
fljótt mun bóndinn sjálfur dáinn.