Beinast liggur við að vona það að vængir hrafna
fljúgi milli fagra hafna
finni sauð og þar með dafna.
Fræklessan
Dafnað getur dável fræ í djúpum hugans.
Uppskeran er umbun þessi
undur þau á skjáinn klessi
Klessuverkum, kýl'inn tökkum, kem á skjáinn.
Kannski einhver klúðrið lesi
kontor-makki, ferða pési
Pési var á posa einum piltur góður,
kylliféll er kortasjóður,
klikkaði og varð strax óður.
Óðar er ég óðarsmíði niður felldi.
Sótti að mér súld og kaldi
sumt er ekki í manna valdi.
Valdi hann að víkja ei er vildi trana
kona sér og kerru bana
kaupfélagið vildi spana
Hondurass til hleyp ég ei í heiðnu flakki
eyði því ég öllu snakki
enda varla telst ég krakki
krakkar bralla kneyfa dalla krjúpir halla
ákavítið ákaft salla
unaðsveigar munað kalla
(ég ætla vona þetta sé rétt form þar sem þetta er mitt fyrsta af þessari gerð)
Svona er nú sóðalegt að semja rímur.
Þetta er graðra drengja draumur,
dásamlegur orðaflaumur.
Flaumur mikill fengi við að fitla dáldið
þekka stúlku, þreifa soldið
þannig æsa mætti holdið
Holdið veikt og hjartað reykt og hugur steiktur
víður botninn vel er sleiktur
vatnsgreiddur og kollur bleiktur.
flaumur orða feikna góðra forða-orða
kviðum stráum, hvergi skorða
kveðskap sáum, margir borða
var of lengi með þessa, læt hana samt flakka, næsti kemur á eftir úlfinum og byrjar á bleiktur
Ég held þá áfram frá keðjunni..
Bleikir fílar, baunagras og brenndir jakkar,
klofnar buxur, kápur þykkar,
kallið þetta tízku ykkar!
Ykkar draumar eins og maðkar, engjast svartir
nokkuð sama nú þú kvartir
næst hér koma dagar bjartir. komið nóg af myrkri?
Kýrilíska kaffið helst ég kýs að drekka
það tyrkneska ég tæpast smakka
tel það bara fyrir krakka.
krakki fylgir kósí stemmning, kæti, friður
þetta látinn mælti maður
(að minnsta kosti dó hann glaður).
Drullupumpan, djöfull er það dýrðlegt tæki.
Víkur! Tekinn – sá hinn seki,
svaðalegur þarmaleki.
Þarmaleki þrútnar æðar þarfir lykta
sturta svo að stoðir hrikta
stanslaust ég við það nú fikta.
Fiktað hafa fávitar við fíkn og eitur.
Er þar margur undirleitur
sem áður stóð í fætur keikur.