hvað með fótafitness? þá er t.d hægt að keppa í tábeygjum og hælsnúningum ..
Blindhnefaleikar gætu verið sniðugir..... pant ekki vera hringdómari
Eftir 10 bjóra kappakstur... þá fyrst sægi maður almennilegt crash..
ég mun bjóða mig fram í þetta göfuga sport
Hmmm ég á víst einhver gömul met í þessari grein, sem eflaust er búið að slá í dag... eða var það bjórlíki... jæja, allavegana lagðist ég á hilluna.
Ég er hrifinn að hugmynd Önnu Pönnu um dýfingarskotfimi, er hægt að mixa fallhlífarstökk án fallhlífar inn í þá grein?
Skíðaskotfimi er auðvitað dæmi um frjótt ímyndunarafl í íþróttasmíð og mætti upphugsa fleiri slíkar tvennur.
Þessu er ég hjartanlega ósammála. Skíðaskotfimi er dæmi um íþrótt sem á rætur sínar í lífsbáráttunni í sinni grimmustu mynd, þegar menn þurftu að skíða langar vegalengdir í frosthörkum til að veiða eitthvað til að borða.
Hvað með að færa skíðaskotfimina í sundlaugina?
Synda 500 m, skjóta af skutulbyssu á kafi, synda, skjóta o.s.frv...
Hvað með Kappsund í ætissýru Ljómar upp
Kappát með maurasýru?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Skrúðganga sem ólympíuíþrótt er eitt af mínum helstu baráttumálum.
Skrúðganga sem ólympíuíþrótt er eitt af mínum helstu baráttumálum.
Já, og skrúðgangan sem ynni þyrfti að hafa skilið eftir sig sem mest drasl, vera með fölskustu lúðrasveitina og helst þarf að kvarnast mikið úr göngunni til að hún teljist lögleg.
Skrúðganga sem ólympíuíþrótt er eitt af mínum helstu baráttumálum.
Já, og skrúðgangan sem ynni þyrfti að hafa skilið eftir sig sem mest drasl, vera með fölskustu lúðrasveitina og helst þarf að kvarnast mikið úr göngunni til að hún teljist lögleg.
Ég og peðin mín myndum rústa þessu!
Frisbí með jarðsprengjum...... nóg er nú til af þeim
Já margar íþróttir mætti stórlega bæta með smá hugmyndaauðgi, oft þarf ekki einu sinni að breyta íþróttinni sjálfri heldur bara breyta vellinum smá.
T.d. með því að hafa alltaf hákarl í sundlaugum (æstan).
Láta langstökkvara stökkva yfir snákapytt eða gryfju með göddum í botninum eins og í prins of persia.
Fótbolti með 4000 mörgæsir á vellinum.
Láta skíðastökkvara þurfa að hitta í gegnum logandi hring.
Og uppáhaldið mitt, listdans á skautum með reiðan ísbjörn á skautasvellinu.
Eftir 10 bjóra kappakstur... þá fyrst sægi maður almennilegt crash..
Hvað með að keppa í hver getur hlaupið hægast, þeas, án þess að hlaupa á staðnum ?
-
Sniglarnir keppa bæði í snigli (hver kemur síðastur í mark án þess að tylla fæti á jörð) og í ölvunarakstri (hjólað milli keil[n]a með bjór í hönd. Bjórinn verður að drekka á leiðinni.
Skilmingar blindra (eða með blindfold sé maður ekki blindur)
Hnefaleikateigjustökk
Grindarhlaup á glóðum (í stað grinda má strekkja gaddavír yfir brautina)
Mig langar alltaf jafn mikið til að sjá skylmingar með alvöru sverðum, ekki þessum málmþynnum sem tíðkast í dag.
Vantar ekki alveg að það sé hægt að fá gullmedalíu í snjókasti ?!
-
Mér finnst að kyrrseta án atrennu ætti að vera ólympíuíþrótt!