Þessi þráður er til þess að bæta aulann upp, erfitt að vera táningur og auli.
Brestur í óstöðvandi grát
En hérna getið þið kæru Gestapóar hjálpað aulanum.
Hefur einhver einhvern tímann sagt þér hvað þú ert með myndarlegt skegg?
Ljómar upp
Sendir aulanum pakka af rennvotum spritthreinsilögur gleraugnaklútum
Sjálfsálitið myndi batna með nafnbreytingu. Maður hættir aldrei að vera auli ef maður kallar sjálfan sig það endalaust... Starir þegjandi út í loftið En hvað veit ég sosum. Hérna, fáðu þér kakó, það bætir, hressir og kætir! Ljómar upp
Hefur einhver sagt þér að búkhljóð þín eru einstaklega hljómfagur og með mikla dýpt?
Hertu upp hugann drengur minn, þú ert drengur góður að því er virðist.
Ég er stúlka!
Brestur í óstöðvandi grát
Suss, ekki hlusta á svona gamla kalla eins og Sæma. Þeir hafa ekki frétt af jafnréttinu... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég held nú aðallega að hann sé nærsýnn og sjái því engan mun á kynjunum.
Kannski maður gefi honum kynjagleraugu í afmælisgjöf til að bæta úr þessu.
Ég er stúlka!
Brestur í óstöðvandi grát
OG ÓGEÐSLEGA LJÓT STÚLKA Í ÞOKKABÓT!
AHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!
Híar ótæpilega á auluna
OG MEÐ YFIRSKEGG!
Stúlka eða ekki stúlka, þú ert víst drengur góður ég dreg ekki úr því, þetta er hrós Bölvar þeim sem skilja ekki íslenska tungu
Drengur góður, jú það var alveg í lagi. Held að það sem hafi farið fyrir brjóstið á henni hafi verið „Hertu upp hugann drengur“.
Ég er stúlka!
Brestur í óstöðvandi grát
OG ÓGEÐSLEGA LJÓT STÚLKA Í ÞOKKABÓT!
AHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!
Híar ótæpilega á auluna
OG MEÐ YFIRSKEGG!
Enter... átt þú ekki að vera okkur hinum til fyrirmyndar í kurteisi og mannlegum samskiptum? Klórar sér í höfðinu
Hafðu það bara hugfast að skegg er tákn um frjósemi svo fúlskeggjaðar konur hafa engu að kvíða.
Drengur góður, jú það var alveg í lagi. Held að það sem hafi farið fyrir brjóstið á henni hafi verið „Hertu upp hugann drengur“.
Það er líka í lagi, skv. minni orðabók:
drengur -s, -ir KK
1
• karlkyns barn
• unglingur, einkum vaskur og efnilegur;
2
• vænn og drenglyndur maður, karl eða kona
3
fornt/úrelt
• fylgdarsveinn
Íslensk orðabók Máls og menningar, 3ja útgáfa
Enter... átt þú ekki að vera okkur hinum til fyrirmyndar í kurteisi og mannlegum samskiptum? Klórar sér í höfðinu
Neinei, það er mikill misskilningur, ég sé bara um að taka ykkur upp á eyrunum og/eða breyta ykkur í skóbusta og/eða froska þegar þið eruð með dónaskap hvert við annað. Sjálfur er ég óttalegur drulluskítablesi, þjakaður af valdhroka og mannfyrirlitningu.
Drengur góður, jú það var alveg í lagi. Held að það sem hafi farið fyrir brjóstið á henni hafi verið „Hertu upp hugann drengur“.
Hún er nú svolítið karlmannleg á þessari mynd. Fyrirgefðu Sæma gamla þessi mistök.Skammast sín