Ég man enþá eins og það væri í gær , þegar ég fölur í fyrsta skiftið kom hingað á Baggalút.
Hræddur og einmanna var ég . Fálmandis þuklaði ég á lyklaborðinu, ömurleg stafsetning
og eingin orðaforði, ég forðaðist orðinn. Stórir menn með mikið hár á brjóstinu lömdu mig andlega og ég hvarf ínn í sjálfan mig, Þá kom hann eins og reddandi eingill í litlum líkama
en stór í andanum og sagði eins og bara einglar geta: FÍFL sagði hann blessaður .
öll sú viska sem falin var á bak við dýrðling þennan gerir mig táreygðan. Einu sinni næstum þvi talaði hann við mig þettað ofurmenni, ég gleimi því aldrei hann sagði: haltu kjafti helvítis fifl! og ´mér fanst eins og ég hafði fundið sannan vin. Elsku vinir getið þið ekki safnað saman nokkrum undirskriftum til að hvetja fram öðling þennan? þekkir eingin skil á honum í raunheimum? getur eingin farið með plaggöt um götur borgarinnar?
Þetta er hin þarfasta umræða, og ætti ég að vita allt um það.
Hvarf Smábagga skilur eftir sig stórt skarð hér á Gestapó. Hnyttnar athugasemdir hans hittu ávallt beint í mark og smugu inn að kjarna málsins. Því miður var hann svo góður í að fela slóð sína og kjötheimapersónu sína að ég er hræddur um að sannleikurinn um Smábagga verði aldrei leiddur í ljós. Þangað til hann kýs að birtast okkur að nýju er ég hræddur um að við getum ekkert annað gert en beðið og vonað.
Þessu er ég sammála. Það er eftirsjá af kappanum. Hann hefði örugglega getað orðið góður krikketspilari. Sómað sig ágætlega í stöðu 5. eða jafnvel 6. kylfings.
Við getum líka hvatt hann til að birtast hérna aftur ef hann er að laumupúkast hérna!
Ljómar upp við tilhugsunina
LIFI SMÁBAGGI!
Nei hættið nú alveg! Hann Smábaggi var gjörsamlega óþolandi og athugasemdir hans voru ekki skemmtilegar og hittnar heldur niðurdrepandi og fyrirséðar. Það eina gáfulega sem hann hefur gert var að stimpla sig endanlega út af Gestapó. Félögum hans í raunheimum óska ég innilega til óhamingju með að sitja uppi með fýlupúkann.
Iss, hann var ágætur blessaður strumpurinn. Það var alltaf ljóst hvar hann stóð gagnvart öllu og það er kostur á þessum vindhanatímum duttlunganna.
Já, mér hefur ávallt þótt vænt um hann. Ég skrifa undir.
Ég mun koma boðunum áleiðis til Smábagga.
En þið ættuð að skammast ykkar, alltaf voruð þið leiðinleg við hann, blessað litla krúttið. Engin furða að hann nennti ekki lengur að segja ykkur til syndanna, aumingjar.
Nei hættið nú alveg! Hann Smábaggi var gjörsamlega óþolandi og athugasemdir hans voru ekki skemmtilegar og hittnar heldur niðurdrepandi og fyrirséðar. Það eina gáfulega sem hann hefur gert var að stimpla sig endanlega út af Gestapó. Félögum hans í raunheimum óska ég innilega til óhamingju með að sitja uppi með fýlupúkann.
HEYR HEYR!
Það er ekki hægt að segja að ég hafi verið með nein leiðindi við hann! Þó ég hafi kallað hann krútt!
Smábaggi er snillingur... Hann er örugglega skemmtilegastur af öllum hérna...
Smábaggi er snillingur... Hann er örugglega skemmtilegastur af öllum hérna...
Uhh..Nei!
Ég skrifa undir. Það var hann sem, lét mig byrja að skrifa með stórum staf í byrjun setningar þegar ég var kallaður Dúddi. Fær nett nostalgíukast
Ég fékk aldrei að kynnast Smábagga.
Brestur í óstöðvandi grát
Ég sakna nöldurseggsins. Þó hef ég grun um að bölvaður púkinn fylgist með og skemmti sér vel.
Ég fékk aldrei að kynnast Smábagga.
Brestur í óstöðvandi grát
Mæli með að kíkja á einhverja af þeim fjölmörgu þráðum sem Smábaggi var virkur í. Þeir eru heil ógrynni, mæli með að byrja á Fyrirspurnunum og Ég hata Svo kannski bara að skoða öll innleggin
Nei, hér tala allir í fyllstu einlægni. Smábaggi er æði!
Hann var óttalega smábaggalegur hann Smábaggi, og ég skana hans svooo. Hann myndi t.d. án efa gagnrýna þetta innlegg, helvítis krúttið. Dæsir mæðulega