Hlær hrossahlátri og klórar sér í skegginu, finnur höfuð af hrúti í skegginu og stingur í vasann
Ja há...... þetta mál er alvarlegra en ég áleit í fyrstu. ygglir sig afsakaðu Sundi ef yrðing mín um vasklega framgöngu þína til varnar Baggalútíu hefir sært þig beyglar brýnnar það var varla ætlunin. Ég myndi þó ekki treysta þessum Dúdda þarna ( hvaðann nú nefnir sig núna ) mig grunar að sé ekki allur þar sem hann er séður og Sesar sé ekki út við sundin blá. Heldur bruggi þeir launráð lítur tortrygginn í kring um sig í dimmum skúmaskotum hinnar viðfeðmu Baggalútíu.
Þetta er móðgun, að þú skulir bendla mig við þennan svikahrapp og aumingja. Ég félst á það að fjárfesta í hugmyndinni hans um að byggja nýjan, stærri Kólóseum hér Baggalútíu. En það var áður en ég fattaði að hann væri bara aumur vitleysingur og loddari. Ég reyndi svo að bæta fyrir það með því að senda hann á vitleysingjahælið. En þótt að þetta sé bara einhver vitleysingur stend ég enn við þau orð mín að byggja þennan leikvang, enda er þetta allsvakalega góð hugmynd.
Hvað er þessi Donni að rífa kjaft... hundsar Don... eigum við ekki að leyfa börnunum að berjast og hætta að karpa... skál félagar...
Hvað er þessi Donni að rífa kjaft... hundsar Don... eigum við ekki að leyfa börnunum að berjast og hætta að karpa... skál félagar...
Þegar eitthvað er haft rangt eftir mér verð ég auðvitað að verja mig... en annars bara skál xT
Fyrirgefðu Don minn, var bara að stríða hehe... xT
Svona karakter sem byrjar á að nefna sig Dúdda og svissar svo yfir í Don de Vító er greinilega að gefa í skyn að hann sé viðsjálverðari en sjálfsálitið var í fyrstu. Þar að auki bendir orðagjálfur þitt til þess að þú hafir eitthvað misjafnt að fela. Ég mun fylgjast náið með gjörðum yðar hér í framtíðinni.
Ég verð nú að segja honum Donna það til varnar að hann stofnaði hið ramm-þjóðlega Glímufjelagið Nærsveitamenn svo hann getur ekki verið alslæmur.
Ég hef alltaf haldið að þessi nafnabreyting hans væri vegna hégógmagirndar, sem er hvimleið en þó ekki stórhættuleg girnd.
Var hann Donni ekki bara í leit að sjálfum sér?
Starir þegjandi út í loftið
Donni uppfærði nafnið í samræmi við stöðu hans í virðingarstiga baggalútíska heimsveldisins.
Svona karakter sem byrjar á að nefna sig Dúdda og svissar svo yfir í Don de Vító er greinilega að gefa í skyn að hann sé viðsjálverðari en sjálfsálitið var í fyrstu. Þar að auki bendir orðagjálfur þitt til þess að þú hafir eitthvað misjafnt að fela. Ég mun fylgjast náið með gjörðum yðar hér í framtíðinni.
Ó, alveg fyrstur með fréttirnar. Lestu bara athvarfið mitt og þá kemstu að öllu sem þú þarft að vita um mig.
Hugsar sig um Ööö...já ætli það ekki.
...sennilega
Segiði ekki bara altt fínt?
Er þráðarstofnandinn hættur...
Vonandi ekki, upphafsinnleggið í þræðinum var sjerlega skemmtilegt Ljómar upp og heldur áfram að reyna að koma tímavjelinni í lag.