Mig langaði bara að segja að loksins hef ég fundið eitthvað uppbyggilegt að gera í vinnunni. Rambaði inn á síðu Baggalúts um daginn og sá um leið hvar ég hef hlaupið villu vegar um alllangt skeið að hafa farið á mis við þetta heldrimanna/kvenna samfélag. Aldrei hef ég lært jafn mikið á jafnstuttum tíma og er þó kenndur við lærdóm. Megi viskuguðirnir fylgja ykkur hvert fótmál og hjólför þegar það á við. Og nei ég er ekki jafn illur og myndin gefur til kynna en er þó 1/32 púki.
Þakka góðar móttökur..
Hinn lærði
Hjartanlega velkominn Lærði. Þú ert vel skrifandi og sleppur því við högg gaddasvipunnar.
Nema náttúrulega þú viljir.
Mundar svipuna Velkominn í þetta samfélag... íhaaa...
Vertu velkominn Lærði og megir þú njóta vel eins og ég hef gert á mínum stutta ferli hér.
Situr í leðurhægindastól. Lítur upp. Velkominn á þekkingarsetrið Baggalút. Flettri stórri og þykkri mannfræðibók en hefur haganlega komið fyrir Andrésblaði milli blaðsíðnanna
Velkominn Lærði-Geöff.
Það er eitthvað heillandi við myndina af þér.
Velkominn, megir þú njóta þess að vera hér eins og við öll hin... við erum reyndar öll Glúmur svo þú vitir það bara strax, nema Vladimir, Mosa og ef til vill Ritstjórnin, sem gæti í raun verið Smábaggi sem er víst Vladimir, en það kemur í sama stað niður...
Velkominn vinur og njóttu vel.
Ekki er ég búinn að hanga hér lengi en notið hef ég vel. Þú örugglega líka.
Það er hundleiðinlegt hérna þeg hætti bráðum
sussar á Skabba
Velkominn Geöff, held ég
sussar á Skabba
Velkominn Geöff, held ég
setur upp lesgleraugun og rýnir í smáa letrið hugsinn á svip
Velkominn, megir þú njóta þess að vera hér eins og við öll hin... við erum reyndar öll Glúmur svo þú vitir það bara strax, nema Vladimir, Mosa og ef til vill Ritstjórnin, sem gæti í raun verið Smábaggi sem er víst Vladimir, en það kemur í sama stað niður...
ÉG er ekki Glúmur nema á þriðjudögum.
Ég neita að vera Glúmur því hann hefur enn ekki kíkt í kaffi.
Vjer lítum svo á að illmögulegt sje að kíkja í kaffi til sjálfs sín. Þess vegna eruð þjer skv. þessum orðum augljóslega Glúmur.
Í dag er ég Ormlaug
Ormlaug! Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
sussar á Skabba
Velkominn Geöff, held ég
setur upp lesgleraugun og rýnir í smáa letrið hugsinn á svip
Hendir gleraugunum og velur takkann vitna í frekar