Arutha er eðall tær
öllum Póum virðing sýnir
Gantast hann og léttur hlær
heilsar öllum: Vinir mínir
Gengur um með galdrahatt
glaðnar yfir hópnum.
Flýgur nornin firna hratt
flengir oss með sópnum.
ég verð að kalla karlin flón
Kondensatorinn
að yrkjum hann er aðeins tjón
eðalleirburðsforin
Upprifinn má oft nær sjá
arfaslakan kauða
ragnarökin rekst hann á
rífur sig til dauða
Lærði-Geöff ég þakka þér,
í þetta mörgum orðum.
Fyrir gjörðir þær, sem gerðir mér
á Grand-Rokk þarna forðum
í mannhafi er mestur hann
mærir gestinn, vinsinn
konungssiði flesta kann
Krondors besti prinsinn
Upp er rifinn Upprifinn
Undarlegur gaur
Blár á honum besefinn
Beinfrosinn við staur
Kaldrifjaður karl í raun
kallaði sig Ívar
telur sig fá telpu laun
tölur negatívar.
Lærði Geóff, ljúfi sveinn
lagvís ert og góður
Hérna verður alldrei einn
þú ungi kvæðasjóður
Aldrei höfði eru í hans
óðir fastir
held ég ætti að hljóta krans
hlewagastiR
Gerir nýja vísu
Skrítlur góðar kann að skrifa
og skondinn er,
Barbapabbi kann vel að lifa
og ávallt fylginn sér.
Ég er nú hálf hneykslaður á síðasta pósti, ef einhver á skilið góða vísu um sig þá er það Barbapabbi. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Fer aftur yfir vísuna og ákveður hreinlega bara að eyða henni til þess að einhver annar geti gert betur Ákveður síðan að gera nýja
kuldalegur, kringluleitur
kúkalabbi
bragvillt lydda, blauður, feitur
- Barbapabbi
dauðinn er duglaus
- daunillur kjáni
skrækróma skíthaus
- sköllóttur bjáni
Eilíft níð þig nærir hrappur
Nóg af klámi, sértu slappur
Takki ertu
Eyru spertu
Rýndu vaskur vendihnappur
hlewa gekk þar glaður inn,
gastiR vildi tróna.
hnýtti endann í endann hinn
ein varð úr persóna.
Prins gekk inn með kurt og pí
passaði í hópinn
Ljóðasmíði leikur í
lagði margan glópinn
Bobby kann ég kalla þig
Karl frá suður gaffli
Pamelu lést prýða sig
pían vildi bara mig