Eftir gláp á þann svínslega leiðinlega þátt Leitin í gær datt mér í hug að hér inni væru án efa efnilegri piparsveinar og sveinkur en í raunheimi hnakkalands. Datt mér í hug að gerast þáttastjórnandi þessa þáttar og óska hér með eftir umsóknum frá áhugasömum. Í umsókninni skal koma fram kyn, aldur, dýrategund, áhugasvið og allmenn lýsing á því sem vakti áhuga viðkomandi á að sækja um. Einnig skulu fylgja með upplýsingar um líkamlega og andlega burði viðkomandi, jákvæða jafnt sem neikvæða. Hjúskaparstaða þarf að vera vituð og samþykki maka til framhjáhalds í Blútsheimum ef með þarf.
Og hefst þá leikurinn!!
kk
óræður
kúasmali
kýr
kýr
líkamlegt og andlegt ástand í út og súður
margmakaður - allir makar samþykkja
Ég er sjálfsskipaður í þetta enda hæfi ég öllum og allir hæfa mig (nema með byssu)... ÍHHHAAAAAA
Svo minnir mig að mér nægi stundum að spyrja sjálfan mig til að fá samþykki maka.
kk
óræður
kúasmali
kýr
kýr
líkamlegt og andlegt ástand í út og súður
margmakaður - allir makar samþykkja
Umsóknin meðtekin og jafnframt minnt á að kvennmenn þurfa að skrá sig líka til að eitthvað verði gaman...
Nú já?
Þá sæki ég hér með um:
Kvk.
Ung.
Homosapiens de facto
Karlmenn og mökunarsiðir þeirra.
Karlmenn og mökunarsiðir þeirra.
Andlegt jafnvægi staðfest af Dr. Zoidberg.
Líkamlegt ástand breytilegt eftir áfengisinnihaldi í blóði.
Makalaus.
Byrjun á umsóknarlistanum:
Karlmenn:
Texi Everto á kúasmali á óræðum aldri, megin áhugamál hans eru kýr og líkamlegt
og andlegt ástand í út og súður. Texi er margmakaður en allir makar samþykkja framhjáhaldið.
Kvenmenn:
Nornin er ung kvennvera af ættkvísl Homosapiens de facto. Hennar helstu áhugamál eru karlmenn og mökunarsiðir þeirra. Andlegt jafnvægi staðfest af Dr. Zoidberg. Líkamlegt ástand breytilegt eftir áfengisinnihaldi í blóði. Makalaus.
Þetta er barasta að verða mjög spennandi...
kk
Ungur,
Talinn homo sapiens, rannsókn stendur yfir.
Gúmmíendur og önnur heimspeki.
Sá að ég átti eftir að segja eitthvað á þræðinum.
Í mýkri kantinum, að vísu ekki vaxtarlega séð. Passa illa inn í smábíla. Með CE merkingu eins og öll boðleg leikföng.
Einteymingur, ekkert makasamþykki enda engin maki.
Er ekki hætta á að Baggalútur rati sömu leið ofan í ræsið og Skjár einn?
Félagsrit skulu vera höfundi sínum til sóma
Er ekki einhver svipuð regla um innlegg?
Í umsókninni skal koma fram kyn, aldur, dýrategund, áhugasvið og allmenn lýsing á því sem vakti áhuga viðkomandi á að sækja um.
Karl.
Rúmlega kjáni.
Mannsveskja.
Smekkvísi og almenn kurteisi.
Bið eftir "þúveist".
"Þéttur Bílskúr"
-
[quote="Hundslappadrífa í neðra"] Í umsókninni skal koma fram kyn, aldur, dýrategund, áhugasvið og allmenn lýsing á því sem vakti áhuga viðkomandi á að sækja um. [/quote
Karlkyn
Eitthvað í kringum 50.000 ára
Fyrrverandi manneskja
Sálir dauðra manna/kvenna og annað í þeim dúr
Æ, ég tók mér smá frí.
Kyn: Karlkyns.
Aldur: Tæplega 2100 ára.
Dýrategund: Karakter.
Áhugasvið: Bautasteinar, mjöður og villigeltir.
Ástæða: Möguleiki á ódauðlegri frægð.
Kostir: Fullkomlega hnöttóttur.
Gallar: Fullkomlega hnöttóttur.
Samþykki maka: Hún veit ekki af Blútheimum þ.a. þetta hlýtur að sleppa...
Kyn: Karlkyn, almennt talið.
Aldur: Síungur.
Dýrategund: Mennskur.
Áhugasvið: Áhuga...?
Ástæða: Þarf það?
Kostir: Þarf það?
Gallar: Þarf það?
Samþykki maka: Maki ekki enn til.
Ég ætla nú ekki að skrá mig í þetta en þarf ekki einhverjar konur/stelpur í þetta? Annars þarf þetta að vera íslenska Bachelorettan.
Ljómar upp
Hljómar afar vel í mínum eyrum Glottir eins og fífl
Kyn: Karlkyn.
Aldur: Enn í fullu fjöri.
Dýrategund: Homo sapiens mini.
Áhugasvið: Stríð, dauði, hungur og ... ööö, e-ð annað.
Ástæða: Mér leiðist í augnarblikinu.
Kostir: Er mörgum kostum gæddur, kann t.d. að reima og skeina mér.
Gallar: Leiðinlegur, ófrjór, ófagur og lítill svo fátt eitt sé nefnt.
Samþykki maka: Ekki til staðar.
Kyn: Man ekki.
Aldur: pass.
Dýrategund: Stolið úr mér
Áhugasvið: Kýs að svara ekki.
Ástæða: ég nota tjórnarskrárbundinn rétt til að þegja.
Kostir: þið verðið að spurja einhvern annan að því.
Gallar: Já, nú veit ég ekki.
Samþykki maka: veit ekki.
Jæja, hvernig gekk mér?