Ég uppgötvaði ótrúlegan fítus í Windows Media Player - í honum er hægt að hlusta á lög á auknum hraða án þess að raddir skríplist. Gæðunum hrakar auðvitað en þó ekki svo herfilega.
Ég hef þessvegna verið að leika mér að hlusta á "Pabbi þarf að vinna" með breyttum hraðastillingum og það er alveg frábært.
Til að virkja stillinguna þarf að velja: View - Enhancements - Play speed settings
Þá fær maður upp sniðugan kvarða þar sem maður getur stillt hraðann, (1 er eðlilegur hraði)
Eftir að hafa fiktað í þessu fram og til baka eru hérna mínar tillögur að hraðaprófunum og varatillögur innan sviga.
Settu brennivín í mjólkurglasið vina 1.2 (2.0)
Kallinn 1.7
þeir stífluðu dalinn minn 2.0
Pabbi þarf að vinna í nótt 1.4
Hún er stúlkan mín 1.4 (0.5)
Þú komst aldrei aftur til mín 1.7
Kaffi og sígó 2.0
Uppi í sveit 1.7
Langferðavörubifreiðastjórinn 1.4
Toggi og Hulduhóllinn 1.2
Jodilei 2.0
Öskjuhlíð 1.2
Á morgun skríð ég aftur 1.4
Yfirvararskegg 1.4
How do you like Iceland 1.7
Söknuður 2.0
Með þessu móti getur maður hlustað 30% oftar á diskinn á sólarhring!
Ljómar upp
Næst að komast að því hvaða skilaboð liggja í disknum sé hann spilaður afturábak. Leggst í vísindarannsóknir
Ef fólk hefur fleiri tillögur að hraðastillingum þá væri gaman að fá þær hingað!
Hraðastillingar!? Ljómar upp
dundar sér við að prófa öll möguleg lög á öllum mögulegum og ómögulegum hraða
Ég uppgötvaði ótrúlegan fítus í Windows Media Player - í honum er hægt að hlusta á lög á auknum hraða án þess að raddir skríplist. Gæðunum hrakar auðvitað en þó ekki svo herfilega.
En það getur líka verið skemmtilegt að raddir skríplist - ætli það sje hægt... Fær nostalgíukast og minnist löngu liðinna tíma með segulbandstæki með stillanlegu viðnámi er bætt var við til að geta breytt upptökuhraða

minnist vínilplötuspilarans (sem súg heldur að sé ónýtur) og hraðastillinganna á honum
Nákvæmlega, mikið lagði maður upp úr því að prófa hraðastillinn á plötuspilaranum. Sum lög fá einhvern veginn annað andrúmsloft og annað yfirbragð ef þeim er hraðað eða hægt á þeim.
Hins vegar þá varðandi lög afturábak þá komst ég að því um daginn að lag Emils Thoroddsen, hver á sér fegra föðurland, hefur á kafla sama hljómagang og þjóðsöngurinn afturábak.
hallar sér aftur í skrifstofustólnum og klappar kettinum að hætti Blofelds; "Ah, Mr. James Bond, ... double o something I presume"
Ég uppgötvaði ótrúlegan fítus í Windows Media Player - í honum er hægt að hlusta á lög á auknum hraða án þess að raddir skríplist. Gæðunum hrakar auðvitað en þó ekki svo herfilega.
En það getur líka verið skemmtilegt að raddir skríplist - ætli það sje hægt... Fær nostalgíukast og minnist löngu liðinna tíma með segulbandstæki með stillanlegu viðnámi er bætt var við til að geta breytt upptökuhraða
Það er ekkert mál með svokölluðum hljóðvinnsluhugbúnaði. Einnig væri það hægt þó tímafrekt teljist að klippa út óæskilegar hljóðmyndanir frá bókstaf sem ekki verður nefndur í þessum texta.
Hef aldrei heyrt ´pabbi þarf að vinna á meiri hraða´
Úlfamanninum læðist að sá grunur að hér sé í raun að fara fram e.k. dulbúin umræða um kynlíf. Úlfamaðurinn sér fyrir sér miðaldra karlmann sem stundar kynlíf við unga konu, og eftir hverja fullnæginguna á fætur annari mælir unga konan ´æi pabbi ekki meiri hraða´, en í þessu tilfelli bara svo að viðkvæmir verði ekki fyrir sárindum, er hugtakið ´pabbi´leyninafn þess sem stundar kynlífið. Úlfamanninum er skiljanlega spurn hversu lengi þessi fulardulli ´pabbi´hefur stundað kynlíf með téðum aðila, og hver konan eða stúlkan sé, og geti nú menn......og sendi Úlfamanninum nokkrar tillögur,
kær kveðja,
Úlfamaðurinn,