Vinsamlegast athugið að þessi þráður er stofnaður með sérstöku leyfi frá Ritstjórn. (Enter)
.
Skilaboðaskjóðan er aldeilis búin að vera á fullu í dag. Verið er að boða til hittings á Grand Rokk kl. 21:00 föstudagskvöld þann 23 sept. 2005.
.
Eftir samtal við hann Kalla á Grand Rokk er hugsanlegt að við fáum að fara beint upp, velja okkur borð og koma okkur fyrir. Síðan opnar upp svona um kl.10:00+.
.
Það sem verður að vera alveg á hreinu! Er að aðgangseyrir verði settur í púkk og komið í réttar hendur. Riddarinn hefur tekið ábyrgð á því.
.
Riddarinn hefur einnig fengið leyfi til að verzla flösku af sínum eðaldrykk á borðið og spurning er hvort fleiri vilja fara þá leið.
.
Allir á Köntrítónleika Baggalúts....Grand Rokk..!..
Setur höfuðið á kaf í vatnsfötu, vonar að ekki þurfi að vinna eldsnemma á Laugardag og að hann klári snemma á morgun. Svelgist á vatninu
Hóst hóst... snökt, krak krakk... Aaaaatsjúúúú!
Ah. Einmitt það já.
Ég mæti auðvitað! Og þakka Enter fyrir að vera svona kúl og líbó Ljómar upp
Ég hyggst mæta á þetta. Hvernig kem ég aðgangseyrnum í púkkið?
Ég ræ lífróður að því öllum árum (þó ekki frella og hórasi og þeim árum) að komast ásamt Hexiu. Já, hvernig kemur maður púkki í aðgangseyrinn... eða ég meina... hmm... já og sem gestapóar, fáum við ekki afslátt?!?
Ég hygg á að mæta seint og fara snemma. Stundataflan er nærri full en í henni er lítið gat þessa kvöldstundina milli vinnu, svefns og meiri vinnu.
Svo þegar tónleik lýkur þá þjóta allir heim til að segja frá þessu í fjelaxritum sem og að hrekkja Vímus
Hve hár skemmtanaskattur kvödsins?
Frelsishetjan hefur lofað að mæta alsnakinn ef ritstjórn áritar hann. Í öðrum fréttum gæti það gerst að ég láti sjá mig, en það mun ekki gerast fyrr en fyrrnefnd Hetja er kominn í hendur lögreglunnar.
Ég mæti vonandi Ljómar upp
Síðast var greitt kr. 1000 fyrir hvern miða til aðgöngu á köntrítónleikanna. Ef að okkur verður hleypt upp áður en miðasalan byrjar, þurfum við að safna saman þeim aðgangseyrir og koma honum til skila.
.
Hafi e-r áhuga á að versla vínanda í flöskuvís, er gott að það komi fram. T.d. er léttvínsbyrgðahald staðarins á þann veg, að gott værir að panta allt slíkt fyrirfram.
.
Annars væri nú voðalega gaman að fá smá hvatningu, frá okkar ástsælu ritstjórum og Köntríkanínum á þennan þráð.
hvað kostar bokkan?
hvað kostar bokkan?
Veit ekki meir. fer það ekki eftir stærð, gerð, létt eða sterkt og árgerð.
Ég mæti vonandi Ljómar upp
Vonandi
Ég get hugsað mér að mæta
Ég get það líka.
Hugsar sér að mæta
Rosalega erum við duglegir.
Kannski að maður mæti og verzli sér krús af hunangi. Ljómar upp