Sælt veri fólkið.
Hef ekki skrifað hér áður en mun vonandi færa yður fögnuð í fikti mínu og fálmi við lyklaborðið.
Þakka þeim sem rutt hafa brautina til varnar íslenskri tungu og riðið á vaðið .
Velkominn! Kondensatorinn og njóttu vel.
Velkominn, Konse...já þú með erfiða nafnið Fýkur eins hratt út og hún getur
Þú lofar góðu Kondensatorinn. Vertu velkominn og láttu fara vel um þig.
Vertu velkominn Kondi, reindu svo að verða þér úti um ásjónu svo maður þurfi ekki að þekkja þig á nafninu.
Velkominn. Megir þú alltaf skrifa jafn vel.
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkominn.
Vertu velkominn en talandi um íslenzku þá segja mínar heimildir að nafn þitt sé komið úr dönsku og að kondensator þýði gufuþéttir eða eimsvali. Má ég því stinga upp á því að þú takir þér nafnið Eimsvali. Væri það ekki svalt?
Buktar sig og beygirTakk fyrir höfðinglegar móttökur.
Ljómar uppNafnið Eimsvali fellur vel að hinni ylhýru tungu og þóknast vel. Mun ég því bera það nafn með stolti að eilífu uns annað verður ákveðið.[/s]
Orðið Eimsvali er einnig hægt að láta falla um þá sem hafa mikið drykkjuþol. Hann/ hún entist alla nóttina enda mikill eimsvali á ferð
Svo rímar eimsvali við kosningasmali.
Kanntu glímu, Eimsvali?
Eigi mun ég það af mér bera. Víst hefi ég stigið í eina bröndótta, þá fögru íþrótt er göfgar guma og glæðir sál. Rafglímur hef ég einnig stundað af kappi nú í seinni tíð í fjörunni við fimmta mann
Eigi mun ég það af mér bera. Víst hefi ég stigið í eina bröndótta, þá fögru íþrótt er göfgar guma og glæðir sál. Rafglímur hef ég einnig stundað af kappi nú í seinni tíð í fjörunni við fimmta mann
Stigið í eina bröndótt...ha?
Ertu að tala um mig?!
Stíga í? Er það þá einhvers konar slangur?
Nei annars, ég vil ekki vita það.
Stíga í vænginn við?
Sæll eða sæl?