Eru þá hinar sk. 'skemmtilegu' stelpur í helvíti með hormottu og samskonar hárgreiðslu og Doofus ? Klórar sér í höfðinu
Eru þá hinar sk. 'skemmtilegu' stelpur í helvíti með hormottu og samskonar hárgreiðslu og Doofus ? Klórar sér í höfðinu
Það eru engar stelpur í helvíti....
Allt í einhverju helvítis rusli, dimmt , drungalegt og subbulegt.
Greinilegt að kvennmaður hefur ekki stigið fæti þangað inn!
ef maður fer til helvítis þarf maður þá aldrei að taka til aftur ?!?Ljómar upp
Fyrirgefið. Ég tel mig nú ferkar vel máli farinn á þó nokkrum þjóðtungum en eitt skil ég ekki: Hvað er þetta "lol", er þetta eitthvað forn-ahrameískt orð sem ég ekki kem fyrir mig, gamalt hebeskt eða grískt slanguryrði eða bara einhver leiðidakækur?
Á móðurmálinu
SOS = Skellur í skoltum
Á móðurmálinu
SOS = Skellur í skoltum
Já þú segir það Blútmotta, fyrir hvað stendur O-ið þá?
Þegar það skellur í skoltum verða brosviprur til þess að o-ið breytist í í, sem og reyndar flestir sérhljóðar. Hahahaha verður til að mynda híhíhí, hohoho verður.................................
Gefur frá sér vellíðunarstunu hjúkk
Nota reyndar HUH (Hlær Upp Hátt) Smá svona útúrsnúningur en tók upp á þessu í bríaríi. Í sama tóni BÍB (Bless í bili).
og KRS (Kem Rétt Strax), HAMA (Hlæ Af Mér Afturendann (sbr. lmao)), VUGH (Veltist Um Gólf Hlæjandi (sbr. rofl)),
Þetta er endalaust gaman!
Þessa skammstöfun nota ég mikið: FLFSNHSÍTOÓÁÞAÞHNÞFÞESS = Fyrirlítur fólk sem notar heimskulegar skammstafanir í tíma og ótíma án þess að það hafi nokkra þýðingu fyrir það er skrifað stendur.
Hvurn fjandann kemur þetta biblíunni við. Nema BIBLÍA sé einhver skammstöfun líka. Veit einhver um það?Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Humm... Kanski Böllurinn Í Birnu Linast Í Agnesi? Hver veit.
Bandalag indverskra bílstjóra leigubíla í Ameríku þetta hélt ég að allir vissu.
Fyrri hönd Lauga þakka ég prinsinum kærlega fyrir þessar greinagóðu upplýsingar.
Hafið þið ekki feyrt lagið? Byrjar að raula B.I.B.L.Í.A er bókin ...
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri