http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1158564
Er þessi frétt uppspuni frá rótum eins og flest annað sem birtist á falsmiðlunum?
Ef: nei
Hver ber ábirgð á kóbaltskorinum sem nú þjakar þá félaga Nóa og Síriuss?
Þetta er með öllu ólíðandi Blótar herfilega og rífur hár sitt Hvern skal hengja til ábyrðar? Látið þrælana vinna meira og grafa dýpra! Strunsar út og skellir á eftir sér
Ætli það sé ekki bara Vladi og hans tímavjel sem veldur þessum kóbaltskorti.
Annars er þetta engin afsökun. Þeir eiga bara að framleiða bragðefnið sjálfir ef þeir finna ekki einhvern sem framleiðir það. Já eða bara nota internetið. Ég er alveg viss um að þetta fáist á Íbei.
Þetta var uppáhalds ópalið mitt!
Hvar á maður nú að fá kloraform skammtinn sinn?Brestur í óstöðvandi grát
Takk en þetta er ekki eins Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Grípur neyðarklóraformflöskuna, hellir nokkrum dropum í tusku og leyfirLitla Laufblaðinu að finna lyktina Alveg eins og Blár Ópal og sykurlaus í þokkabót Ljómar upp
Svona, þú verður í það minnsta algjörlega útsofin á ballinu á morgun.
Étið bara "ÚltraKóbalt" með grænum ópal, það gefur svipuð áhrif - þó nokkru betri virtaskuld - en svipuð.
Ekkert, ég endurtek ekkert getur komið í stað blás ópals. Brenni er vissulega ágætis vara, en kemst ekki í hálfkvist við bláan ópal. Nógu slæmt er að sá blái hafi ekki verið framleiddur sem risa-ópal, en að hætta að framleiða hann er ófyrirgefanlegt. Legg til að við hættum viðskiptum við við téð fyrirtæki þar til blár opal kemur aftur á markað.
Nei! Ekki bláa ópalið! Það var svo yndislega gott! Syrgir
Þetta er sorglegt að frétta
dregur andann upp í nefið og segir með ekka "It´s an end of an era"
NEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII..!.. Ekki bláa Ópalið. NEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII..!..
Ég er rokinn í kaupfélag Melrakkasléttu, síðustu fregnir herma að þar séu nokkrir pakkar eftir! Frelli er víst byrjaður að hamstra þar.
Það er mikill missir að bláa ópalinu. Ég iðrast þess nú að hafa svo sjaldan neytt blás ópals. Brestur í óstöðvandi grát
Reyndar rámar mig í að einhverntímann á níunda áratugnum, þegar mörg ár voru síðan sást síðast til hins indæla „Nóa“ töflusælgætis, fundust miklar birgðir af slíku í verslun í Færeyjum. Það má vera að eins sé með Bláa Ópalið, þessir Færeyingar hafa keypt síðasta brettið og ætla að sitja að þessu einir næstu árin.
Það eitt er víst að ég er farinn út í næstu sjoppu að byrgja mig af bláum opal.Klórar sér í höfðinu