Allir krakkarnir voru af yfirstétt, nema Hlebbi, hann var plebbi.
Alla krakkana langaði auðvitað niður í Flóa ... nema Fergesja, hann langaði mest til Suðurnesja.
Allir krakkarnir voru femínistar nema Blöndungur, hann var karlpungur.
Allir krakkarnir voru úti að leika nema Garbo, hún var alltaf á BBO. ( http://www.bridgebaseonline.com/ )
Allir krakkarnir eru alvöru, nema Golíat, hann er plat. (Var þetta nokkuð komið áður?
Allir krakkarnir eru kurteisir í umferðinni nema Regína, hún á það til að svína.
Allir krakkarnir í hverfinu yrkja sonnettur nema Grágrímur. Hann kveður rímur.
Allir krakkarnir sögðu drykkur, nema Lopi, hann sagði sopi.
Allir krakkarnir urðu fúlir, nema Fergesji, hann varð haldinn ergelsji.
Allir krakkarnir voru sléttir, nema Blöndungur, hann var með bungur.
Allir krakkarnir þurftu að pissa nema Grýta, hún þurfti að... eh... leysa vind.
Allir krakkarnir háðu stríð nema Grágrímur, hann háði glímur.
Allir krakkarnir fóru í lautartúr á Savonlinna, nema Garbo, hún villtist til Espoo.
Allir krakkarnir eru léttir á fæti nema Blöndungur hann er mjög þungur