Las þennan fína pistling hjá honum Spesa..hér er brot:
Ef okkur eru fluttar staðreyndir ber að fagna því að okkur sé sagður sannleikurinn yfirleitt, þó hann sé kannske ekki sá sem við vildum heyra...
.
Nú er ég dáldið forvitinn að vita hvað varð til þess að hann skrifaði þennan pistling, hvort einhver hafi verið að kvarta yfir fréttaflutningi Baggalúts eða hvort hann er að vitna í eitthvað annað og hvort mér komi það yfirleitt eitthvað við?
Já hvernig er það Spesi, var einhver villutrúarmaðurinn að kvarta? Það er ekki oft sem þú skrifar eitthvað af viti.
Ég hleraði fyrir tilviljun samskipti tveggja labbakúta, hvar annar vildi meina að frétt sem ég skrifaði á dögunum hefði verið byggð á því að ég væri einhver sérstakur stuðningsmaður ákveðins einstaklings, manns sem ég hefi varla hugmynd um hver er.
Þetta var að sjálfsögðu algert þvaður. Eins og venjulega hafði ritstjórn falið mér að fjalla um hluti sem mér gæti ekki staðið meira á sama um.
Mér gramdist hins vegar þessi ásökun og úr varð þessi litli reiðilestur minn.