Áðurfyrr víst öllum bar
að elsk´ & virða grannann.
Þarna faðmast félagar
sem fíla vel hvor annan.
Vöðvafjallið faðmar hinn
feikilega rana.
Í laumi horfi' á lærin stinn
líst þó best á fílinn þinn.
Það er óþarfi að misskilja þetta, mér finnst fíllinn í alvöru fallegri en kallinn.
Í orðastað Tarzans:
Minn sturtuhaus og steypibað
stundum er á spani.
Jú nú skal ég játa það
já þig elska rani.
Vill síðan ekki einhver koma með nýja mynd...
Ætlar enginn að yrkja hér... verð ég að velja nýjan þráð vikunnar strax?
Karlinn fékk sér kók og romm
karlinn er ei styggur.
Hann er bara doldið domm.
- Doktorinn er hryggur.
Doktorinn var djöfull súr
Helvíti var orðið
Braut hann flestum bakið úr
fleigði svo á borðið
Hryggur sér að hrygðarmynd
hampar góðu bragði,
og þeim þótti engin synd
er hann hnífnum lagði.
Ha, ég sé ekki neitt? En helvíti voru þetta góðar vísur hér fyrir ofan...
Ýmislegt hér ekki má
inn á myndir sýna
fari það brjóstið fyrir á
flestum hér í Kína.
Á myndinni er léttklæddur læknir að þukla hryggjarsúlu mannveru af óþekktu kyni... væntanlega þó af konu... svona fyrir þá sem ekki sjá myndina...
Hneykslast ógurlega Nei, þetta er ábyggilega karlhryggur. Léttklæddur? Gengur fussandi burt.
Hannibals nokkurs nú er minnst
næringu af beinum saug
ungum lækni alltaf finnst
anorexía lítið spaug
Maður bullar þá bara.
Hugljúfir tónararnir hryggsúlu frá
hljóma er doktorinn leikur.
Djöfull er hann þó dapur að sjá
doktorinn er eitthvað veikur.
Best að láta þennan leir flakka:
„Sjáðu hér hrygginn, sem hryggir mig nú,
því höndum og fótum ég týndi.
Og hauskúpan er líka horfin af frú.
Hvar er nú allt sem ég rýndi?
Beinin voru víst af frú
vitnar um það kjúkur.
Hryggleysingur hreyfist nú
heldur stimamjúkur.
Segi svona... vill ekki einhver koma með nýja mynd?
Í leyni hvílir Mjási minn
mýsnar til að hitta.
Hefur riffils hólk við kinn
hann er mikil skytta.
Blástjarnan mín blíð og skær,
blessuð klóartólin.
Kettlingurinn káti fær
kisudót um jólin.
Var það svo Kisi sem Kennedy skaut?
Kattliðugt helvitið læddist á braut,
Snati drap Lennon og Blesi skaut Bobby
blessuð, þau verða að eiga sér hobbí.