Ekki misskilja, d4 segir hvaða kall er verið að taka (drottningarpeð í þessu tilviki) d5 segir svo hvert er verið að leggja það.
Væntanlega er þá komið að svörtum núna
Byrjar drottingarpeðið á d4? Vonandi endar það frekar á D4, en að leika D5 á móti því er bara fíflagangur.
Ekki þetta vesen, Órækja!
d5 var leikur svarts, hans peð byrjaði á d7.
Jújú, ég þekki nú nokkurnvegin uppstillingu mannanna á borðinu, en þessi leikur var augljóslega bara fíflagangur já Limbra, sem er að reyna að sleikja sig upp við Baggalýtinga með því að gefa frá sér skákir.
En með þessa þrívíddarskák, vinnið þið þá báðir? Hver tapar þá eiginlega? ÉG?? Rífur af sér hitt eyrað
ÞÚ ERT EKKI MEÐ HVÍTT, ÞAÐ ER ÉG SEM ER MEÐ HVÍTT!
Ryður taflmönnunum af borðinu, strunsar blótandi út og skellir á eftir sér.
Vá! Þið eruð einstaklega skemmtilegir í dag, kæru gestir. Nú er Myglar að ryðja upp í sig magnýltöflunum hans Núma og sturta þeim niður með Spuri.
ég hefði haldið að það væri eðlilegra að þið mynduð sturta í ykkur Cialagën töflum.
Hafðu þig hægan Tony!!!!
Nei sko, hér hefur enginn sést lengi !