Hmm...þetta er kannski sniðugra en við fyrstu sýn.
Reyndu þó að hafa stóran staf, þrátt fyrir rúnirnar blessaðar.
Notuðu rúnamenn lítið bjé? Klórar sér í höfðinu
Eek takka ikkur innileka firir hliar mouttokur. Annars uar innihaldid i beinu framhaldi ab firirsokninni, Hakuhci.
Sendir Eek alveg sjóðheitar og rjúkandi móttökur
Eek takka ikkur innileka firir hliar mouttokur. Annars uar innihaldid i beinu framhaldi ab firirsokninni, Hakuhci.
Það er satt. Ég sé það núna. Velkominn.
hæ
Hae.
elsku vínur Fyrir Löngu síðan hét maður Guðbjörn, hann átti konu fagra og dóttur væna og fugl eiin lítinn og ljótann, enn vel máli farinn, Fuglinn ljóti gat sagt hæ! betur enn nokkur annar fugl , Hann var frægur um víða veröld fyrir Hæið sitt og kom fólk úr öllu álfum heims að hlusta á hæið hans, þegar saga þessi bráðum er hálfnuð bar það til tíðinda að konungur ríkissins féll í djúpan leiða. Snillingar alheims söfnuðust saman , funduðu og reyndu alt sem geta gat til að gera konungi glaðan dag. Þeir suðu pillur af öllum stærðum og gerðum, í öllum litum regnbogans.Kóngur át án árangurs, Þá vinur komust fræðingar heims að því að eina ráðið til að redda háttvirtum konungi væri að láta fuglinn ljóta syngja sitt dásamlega Hæ. Fuglin ljóti söng sitt fegursta Hæ. Konungur brást vel við og lækkaði fasteignaskattin og gaf hálfa ríkið
og prinsessuna til dóttur Guðbjarnar,hún var svona samkynhneygð eins og allar nútímamanneskju eru í dag. þess vegna elsku Eekin mín haf þú Hæið í hávegum
HÆ, Bræður. Getur verið að fuglin í sögunni hafi verið Páfagaukur?
Þeir eru sagðir geta lært það sem þeim er kennt án þess að bulla fyrst í mótþróaskyni.
Athugid ad nabnid mitt beikist suona:
Eek
Mik
Meer
Min
Er þetta ekki Niðurlandíska þar sem neðanmálsmenn búa?
Mér líst ekkert á þetta.
Horfir tortryggin í kringum sig og setur á sig hettu og hleypur langt langt langt í burtu
Jah... það gæti hugsast að ef ekki er um neðanmálsmann að ræða þá gæti hann verið frá undirheimum (Niðurlöndum) og því verið undirheimskur...