Góða kvöldið.
Ég vildi bara láta ykkur vita að ég hef ákveðið að setjast hér að.
Um leið og ég verð búin að koma mér fyrir og komin einhver mynd á mig mun ég að sjálfsögðu slá upp innkomuveislu.
Með vinsemd og virðingu
Línan
Velkominn. Láttu nú ekki hræða þig í byrjun og stattu með sjálfri þér Lína góð.
Góða kvöldið, og gangi þér vel línudansinn á Gestapó.
Samt óþarfi að nota tvær línur.
Þakka ykkur kærlega.
Ég er enn að reyna að átta mig á snilli minni að koma þessu tvisvar inn. Talandi um athuglissýki Er ekki alltaf best að byrja á að fara yfir strikið?
Og það með 20 mínútna millibili. Gæti flokkast sem langtímaathyglissýki eða jafnvel fjöldagaathyglissýki því þetta nær yfir báða dagana. Glottir eins og fíflalegur læknir
Mmm daaa.
Hvaðan kemur þetta "mmm daaa"? Ég er alltaf að heyra þetta frá vinkonu minni. Er þetta úr þessari klikkuðu frönsku teiknimynd?
Nei, þetta er úr frábærum ítölskum teiknimyndum (Línunni) er RÚV sýndi stundum fyrir löngu Ljómar upp og fær nostalgíukast.
Æ já ítölsk... hélt þetta væri franskt. Línan já, ætlaði mér alltaf að kíkja á það einhvern tímann.
Út hafa komið 3 DVD diskar með þessari snilld. Þeir fást út um allt held ég, en öruggast þykir mér að benda ykkur á þann eðalstað sem 12 tónar er. Ég tel fullvíst að þar sé hægt að nálgast góð eintök af téðum diskum.
Sjálf hef ég undir höndum fyrsta diskinn og er hann mikill kostagripur.
Velkomin Línan og njóttu vel.
Ljúfar minningar að sjá myndina af línunni... salút...
Þakka ykkur. Hlakka til að rifja upp gamlar minningar með ykkur mörgum og jafnvel búa til nýjar Glottir eins og fífl
Velkomin Lína. Ég verð að segja að þessi mynd þín ferð þér afburðavel.