Nú er ég ósáttur og óska lausnar... allar hugmyndir þegnar...
Ég er vanur að afritað vísur sem ég geri yfir í ritvinnslu-skjal í tölvunni minni og á auðveldan hátt þannig safnað saman mínum vísum... með dagsetningum og tímasetningum vísnanna... þannig afrituðust vísurnar fyrir breytingu:
Skabbi skrumari 05/06/05 - 18:06
Fylla mig á stundum stenst
stóðst þó ekki máti
Flaskan hefur ekki enst
endar því með gráti
En nú verð ég að breyta textanum til að fá þetta á sama formi... dæmi:
Skabbi skrumari
Fylla mig á stundum stenst
stóðst þó ekki máti
Flaskan hefur ekki enst
endar því með gráti
... eða ef ég afrita þetta eins og það er með dagsetningu:
05/06/05 - 18:06 • Svara • Vitna í • Breyta/eyða Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari
Fylla mig á stundum stenst
stóðst þó ekki máti
Flaskan hefur ekki enst
endar því með gráti
Einhver lausn til?
Skemmtileg umræða... hvernig væri ef ritstjórn myndi einfaldlega færa dagsetninguna þannig að hún verði við hliðina á nafni Gestapóans?
Svo gætir þú einnig skrifað vísuna í textaritli svo sem Word eða notepad eða hvað sem hentar best og afritað yfir í ritgluggan í Gestapó. Bara svona tillaga sko.
Sé þetta ekki sem stórt vandamál að laga það sem afritað er í t.d. Word... jahh að vísu ert þú Skabbi svo afkasta mikil að það er kanski verið að tala um nokkurn tíma sparnað fyrir þig.
Starir þegjandi út í loftið
Ætla alls ekki að vera með leiðindi sko, biðst forláts...
Mér þætti vænt um ef ritstjórn myndi tjá sig um málið og ég get reynt að útskýra þetta nánar ef þörf er á... þetta er náttúrulega mjög sérhæft vandamál...
Það er lítið mál að færa dagsetninguna til baka. Ég hjóla í þetta og aðrar aðkallandi umvandanir við fyrsta tækifæri.
Óheimilt er að afrita vísur þær sem olti hafa upp úr mér á sérstaks leyfis höfundar (það er ég). Þó er heimilt að læra vísurnar utan að og hafa þær í flimmtingum.
Þú ert dýrðlegur Enter minn... þú afsakar mínar tiktúrur... og þakka þér fyrir, vonandi finnst engum það verra þó dagsetningin færist aðeins til í innleggjunum...
Óheimilt er að afrita vísur þær sem olti hafa upp úr mér á sérstaks leyfis höfundar (það er ég). Þó er heimilt að læra vísurnar utan að og hafa þær í flimmtingum.
Ég snerti ekki vísur annarra... ég afrita einungis mín eigin hugverk og ekki ef einhver annar á hlut í því, þ.e. botn eða fyrripart...
Ég held nú að Skabbi sé aðallega að reyna að halda utan um eigin kveðskap.
Annars er þetta full seint Bölverkur minn, ég var rétt í þessu að heimila heildarútgáfu á verkum þínum hér í Bahrain.
Was?! Skabbi, líturðu eki við mínum vísum? Ég vonaði að allir afrituðu þær með mikilli leynd.
Já með leynd, en það veist þú ekki... múhahahahah... hóstar
Þú ert dýrðlegur Enter minn... þú afsakar mínar tiktúrur... og þakka þér fyrir, vonandi finnst engum það verra þó dagsetningin færist aðeins til í innleggjunum...
Ég gæti nú bara hugsað það það yrði jafn vel mun betra
Afritar Skabba
Jæja, það fer að líða að því að ég vilji fara að afrita vísur, eitthvað að frétta af þessu... engin pressa þó Enter minn...
Þakka þér fyrir Enter minn, nú fer ég á fullt að afrita vísurnar mínar... Skál...
Skabbi skrumari 05/06/05 - 18:06
Fylla mig á stundum stenst
stóðst þó ekki máti
Flaskan hefur ekki enst
endar því með gráti
Ef ég stæði í því að afrita vísur þá yrðu það að vera annaramannavísur því að þau álög hvíla á mér að ég get ekki sagt eitt stakt orð í bundnu máli.
Brestur í óstöðvandi grát
Vísurnar sem þið mörg hver yrkið hér er þó góð sárabót.
Stekkur hæð sína
Krókur minn, það geta allir ort, ég kunni ekki staf í þeim fræðum þegar ég byrjaði á Gestapó fyrir nokkrum misserum síðan...
Það get ég sagt þér Krókur að Skabbi hefur rétt fyrir sér. Ég kunni ekkert þegar ég kom hingað en er búinn að læra helling í þessum málum á frekar stuttum tíma, og er enn að læra.
Ber ég öllum sem að máli komu þakkir mínar.