Mér bárust þær fregnir til eyrna að Evrópusambandið hefði gefið út tilskipanir um kokteila ýmiskonar. Má þar nefna að eggjakokteill telst ekki eggjakokteill nema að svo og svo mikið af eggjum og öðru sulli sé í kokteilnum. Þetta er auðvitað bráðnauðsynlegt og hverrar krónu, eða evru, virði að eyða skattfé í þessháttar tilskipanir.
Þar sem áfengisneysla er gríðarleg hér á Baggalút er ekki úr vegi að herða á reglum um hvað telst t.d. ákavíti, í hvurslags umbúðum þesskonar áfengi á að vera o.s.frv.
Mér þykir það í hæsta máta óeðlilegt að í skriffinskuríki sem Baggalútur er að ekkert slíkt skuli vera til. Ég legg til að sir Ruglubulli taki þetta mál að sér.
Þá væri kannski hægt að skipa í nefnd og ráða ennþá frekar framúr þessu.
Ég býð mig hérmeð fram í þessa mikilvægu nefnd sem gæti, til lengri tíma litið, haft veruleg áhrif á áfengisneyslu Bagglýtinga.
Kokteilar? Hahahahahaha, ég hef ekki heyrt minnst á þá síðan ég var 14 ára, en eftir það voru þeir ekki nógu sterkir.
Kokteilar eru nú bara jafn sterkir og blandarinn vill hafa þá.
Hellir Stroh 80 út í kakóið sitt
fær sér vodka 50% og stroh 80% í hristarann og hristir tammtarammtammtamm...opnar hristarann og drekkur innihaldið AAAAAAAHHHHH þetta var hressandi sofnar
Ruslar Ívari upp í hjólbörur og reynir að keyra hann að rúminu. Gefst upp og setur púða undir hausinn á kallinum í staðinn
ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ
Að rusla manneskju upp í hjólbörur hefur ekki enn verið gert að tilskipun hjá ESB. Ég er hræddur um að þið hafið farið á sveig við geigvænlegt bjúrókrat ESB... svo að ég tali nú ekki um bjúrókrat Baggalútíu! Hrökklast aftur á bak og hrasar við
hellir saman læknaspíra og stroh 80 hristir vel Jæja! Adios amigos! skellir þessu í sig og sofnar um leið
Hefði þessi annars ágæti þráður ekki átt að sullast inn á "Efst á baugi"?
Hver passar uppá þetta eiginlega?
Að rusla manneskju upp í hjólbörur hefur ekki enn verið gert að tilskipun hjá ESB. Ég er hræddur um að þið hafið farið á sveig við geigvænlegt bjúrókrat ESB... svo að ég tali nú ekki um bjúrókrat Baggalútíu! Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Víst er það satt og rétt Rasspabbi minn kær.
Það á þó aðeins við um manneskjur aðrar en mann sjálfan. Þar sem við Ívar erum löglega gift Sveiflar hjúskaparvottorðinu og gefin saman með einhverjum orðum um að „tvö skulu nú vera orðin eitt“ skilst mér á smáaletrinu að ég hafi fullt leyfi til að rusla Ívari mínum upp í hjólbörur, nú eða hvert þangað sem hugur minn fýsir þá og þá stundina.
En hafið þjer pappíra upp á að þjer megið eiga hjólbörur ?
Lítur grunsemdaraugum á Vlad
Hver sagði eitthvað um það í hvers eigu hjólböruskrattinn er?
Ehh... uhhh... sko, þjer þurfið líka að hafa pappíra upp á að þjer megið nota hjólbörur þar eð um hættulegt 'farartæki' getur verið að ræða sje það eigi notað eins og til er ætlast.
Fer í fýlu Viltu kannski prófa hvernig er að fá hjólbörur í hausinn, ha?
Áttar sig á að ekki er gáfulegt að lenda á listanum ógurlega yfir óvini ríkisins
Eh, ég meina sko... má ekki bjóða þér Kóbaltkakó?
Ljómar upp Jú, það hljómar vel Sýpur á fagurbláu kakói og gleymir öllum pappírum og eyðublöðum
Bruggar meira Kóbaltkakó til að halda forsetanum ánægðum
Fær sér Admiral og flugvélabensínskokteil með dass af Últrakóbalt
Reykingar eru bannaðar nálægt mér næstu tvo tímana takk!
Það var nú verra. Vjer ætluðum að fara að prófa nýja eldflaugahreyfla. Líklega er þá best að flytja tilraunasvæðið til Portúgals, þar tæki enginn eftir þessháttar tilraunastarfsemi.