— GESTAPÓ —
Stikluvikakeðja
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 24, 25, 26
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kynjólfur úr Keri 21/5/06 02:39

Sæst við gætum, víst ég veit,
og veðjað á með stolti
að bjóða á þetta Balkan-deit
Baggalútsins köntrísveit.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Loki 28/5/06 16:02

Sveitinn út á enni mér
ákaflega sprettur
er í sumarhitum hér
hleyp um garðinn næstum ber.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 28/5/06 16:13

Berjasultan sæt, er fín,
set á pönnuköku.
Rjómasprauta, randalín,
rommkaka og berjavín.

Ekki stíga svona fast í vitið, þú gætir hrasað.
LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 24, 25, 26
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: