Barbarella olli oss reyndar algjörlega ógleymanlegum vonbrigðum í æsku. Ástæðan er sú að vjer sáum hana í sjónvarpinu skömmu eftir að vjer sáum Star Wars í bíó, höfðum lesið í Mogganum að hún gerðist úti í geimnum og töldum því vera um að ræða eitthvað í líkingu við Star Wars. Eigi reyndist svo vera, oss til ógleymanlegra (og sárra) vonbrigða.
Það er óheppilegt.
Myndirnar búa jú yfir mismunandi fílósófíu gagnvart viðfangsefni sínu.
Já Barbarella var með skemmtilega einfaldar brellur a meðan Stjörnustríð var með þær flóknustu sem sést höfðu á þeim tíma, þannig að ég skil áfallið sem forseti vor upplifði. En forsetinn verður örugglega ekki fyrir vonbrigðum ef hann horfir aftur á myndina nú þegar hann hefur náð fullum þroska.
Það hefur komið mikið af grunsamlegum nýliðum undanfarið og er alvitra asnastrikið þeirra grunsamlegastur.
Er ekki líklegt að fleiri hafi skráð sig inn núna eftir breytingarnar því að Gestapó er orðið svolítið meira aðgengilegt þar sem tengillinn er nú á milli hluta sem líklegt er að menn smelli á í stað þess að vera uppi í hægra horninu.
Annars er ég sammála þér margir hverjir eru grunsamlegir en þó eru sumir grunsamlegri en aðrir og þá kannski sérstaklega þeir sem virðast gera byrjenda mistök í einni færslu en hafa síðan máske lagt fullkomna svið/mynd/tengla færslu þar rétt á undan. Gaman væri að vita um hvern þú ert að tala þegar þú segir alvitra asnastrikið. Kannski höfum við báðir þann sama grunaðan.
-
Mikil tortryggni í gangi hér hjá eldra liðinu . Annar hvor nýliði andsetinn ef marka má orð ykkar.
Mikil tortryggni í gangi hér hjá eldra liðinu . Annar hvor nýliði andsetinn ef marka má orð ykkar.
Ég er nú bara með 2 nýliða í rannsókn. Aðrir komast inn í landið á sínu vegabréfi og ekkert við það að athuga.
-
Allir eiga að vera vinir í skóginum!
Valhoppar burt í gleði sinni
Er verið að skipuleggja galdrabrennur hér?
Ekki eins og er.
En það er góð og forn íþrótt hér á Baggalúti. Kannski kominn tími á nýja.
Leitar að sökudólgum til að æsa múginn gegn
Þetta vekur upp alltof erfiðar minningar
Skelfur af hræslu
Engar áhyggjur. Helmingur kvenpenings hér virðast vera einhvers konar nornir, við hreinlega höfum ekki efni á að brenna fjölkunnugu fólki. Þess vegna leitum við í aðrar starfstéttir eins og t.d. lögfræðinga eða tannlækna.
Þeir brenna bara svo andskoti illa. Sérstaklega lögfræðingarnir.
Já. Það þarf helst að brenna þá þrisvar til að ná einhverjum árangri.
Hvaða starfsstétt ætli fuðri best upp? Ætli það hafi verið gerðar vísindalegar tilraunir til að skera úr um það? Málarar eða kannski barþjónar. Vinnandi í gufum frá eldfimum efnum alla daga.
[...]
Annars er ég sammála þér margir hverjir eru grunsamlegir en þó eru sumir grunsamlegri en aðrir og þá kannski sérstaklega þeir sem virðast gera byrjenda mistök í einni færslu en hafa síðan máske lagt fullkomna svið/mynd/tengla færslu þar rétt á undan. Gaman væri að vita um hvern þú ert að tala þegar þú segir alvitra asnastrikið. Kannski höfum við báðir þann sama grunaðan.
-
Það mundi sjálfsagt vera þessi hér.
Reyndi ekki Glúmur eitt sinn að útrýma öllum nornum hjer með einhverjum stórundarlegum aðferðum ? Þær aðgerðir hafa greinilega misheppnast því ef vjer munum rjett var hjer engin norn er aðgerðir hans hófust en síðan hefur þeim fjölgað stórlega.
Ég sé fyrir mér svakalegt blóðbað.
hugsar um Glúm sveifla sverði út í loftið
Þetta var fyrir minn tíma hér. Reyndi Glúmur kannski að særa djöfla, og skapaði þar með mikla neikvæða orku hér á Gestapó, sem síðan laðaði að sér ýmis konar vætti og kuklara?
Bara pæling.