Ég vil byrja á að kynna mig formlega og segja að ég hef skemmt mér konunglega frá því að ég komst í kynni við ykkur, góða fólk, á Baggalút.
Vertu velkomin! Og gangi þér vel hérna...gott er að sýna auðmýkt fyrsta kastið og þú mátt búast við einhverju tuði um nýliða til að byrja með (það gerist alltaf) en annars erum við bestu skinn inn við beinið. Góða skemmtun!
Ég er auðvitað auðmýktin uppmáluð í svona fínum og háæruverðugum félagsskap. Mun auðvitað sýna þeim sem hafa sannað sig hér á vefnum tilhlýðilega virðingu. Annað væri nú argasti dónaskapur, ekki satt.

Sko hvað hún byrjar vel! Ljómar upp
Gaman að fá þig, njóttu vel.
Tek undir það, velkomin og njóttu vel.
Vil auðvitað ekki vera efasemdarrödd - Galdra virðist afbragðsmanneskja - en er hún ekki einum of frábær til að vera nýliði? Og ef við skoðum líka hvenær hún skráði sig? Er þetta ekki bara alteregó...?? Starir þegjandi út í loftiðHrökklast aftur á bak og hrasar við
Alteregó eða ekki... stórt er spurt? Kannski er þetta bara ídeal egóið mitt sem kemur fram hér. Óraunhæfur draumur um það sem ég vil vera... svo ég fari bara að sálgreina mig.
Ég gleymdi mér svo í egóistiskum pælingum að ég skráði mig ekki inn. Gerist vonandi ekki aftur.
Góðan og blessaðan daginn.
Ég sé að þú hefur tekið upp Jane Fonda, en það var ákkúrat myndin sem ég notaði áður en Gunnar í Krossinum frelsaði mig og kynleiðrétti mig.
Láttu fara vel um þig hér, enda ekki annað hægt.
Vil auðvitað ekki vera efasemdarrödd - Galdra virðist afbragðsmanneskja - en er hún ekki einum of frábær til að vera nýliði? Og ef við skoðum líka hvenær hún skráði sig? Er þetta ekki bara alteregó...?? Starir þegjandi út í loftiðHrökklast aftur á bak og hrasar við
Það hefur komið mikið af grunsamlegum nýliðum undanfarið og er alvitra asnastrikið þeirra grunsamlegastur.
Grunum allt og alla fyrir landráð!
Tekur upp hrífu og espir múginn í hatursfyllta þyrpingu.
Velkomin Galdra. Ertu í einhverju vinfengi við Galdrameistarann?
Því miður náði ég ekki að kynnast Galdrameistaranum enda miður mín þegar ég uppgötvaði að hann var horfinn á braut þegar ég mætti á svæðið. Kannski svífur andi hans enn yfir vötnum Gestapó en ég er nokkuð viss um að ég sé ekki andsetin.
Já, Krókur, mér fannst Barbarella mjög viðeigandi mynd enda var hún göldrum líkust.