Vildi bara benda á það að Eldrefs vafrarinn er byrjaður að sýna síðuna í fremur leiðinlegu ljósi. Kom fyrst í gær, en þar áður virkaði hann fínt.
Þetta neyðir alla góða menn til að ræsa Veraldarvefs könnuðinn frá Smábúnaði til að líta Baggalút augum. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Með von um að ritstjórn og tæknimongúlar veldisins sjái sér fært um að lagfæra sem fyrst.[/img]
Bíddu nú við.
Hann virðist í ágætu formi hjá mér. Hvað breyttist hjá þér í gær?
Hefur greinilega verið einhver padda í kerfinu hjá mér. Stendur allavega fyrir sínu núna.
Ljómar upp