Nú eru mjer alla dauðar lýs af baki dottnar.
Það á ekki af okkur að ganga.
Síðasta kallavígið fallið, hræðilegt.
Jeg er gráti nær. Hver stendur eiginlega fyrir þessu offorsi?
Yfirkokkur Hvíta hússins er kona.
Ertu semsagt að segja að kallar kunni frekar að elda en konur?
Mér sýnist þessi aðgerð vera frekar í anda afturhaldsfasistanna í Repúblíkanaflokknum. Þeir eru að setja konu í eldhúsið, þar sem þeir telja án efa að hún eigi helst heima. Þeir hafa örugglega gert kokkinn að ráðherra í ríkisstjórninni í staðinn. Þetta eru náttúrulega algerir KEAistar.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Mér þykir þú bera tíðindi.
Tískan gengur í hringi. Það verður kominn fimmlima kvikindi í kokkhúsið þegar Mr. Warren tekur við völdum
Ég held að allar slá megi á allar áhyggjurvegna kynjafræði og feminisma með setningu úr Trainspotting (eftir að Begbie vann á veðreiðunum og hann og Renton fóru út á lífið til að fagna (lausleg þýðing mín)): "Eftir hundrað ár verða hvorki til konur né karlar, bara aumingjar (e. wankers)".
Ps. Fyrst minnst er á Trainspotting þá vil ég hér með vekja upp að nýju kröfu undirritaðs um að Robert Carlyle taki við af Pierce Brosnan sem James Bond, hann fór á algerum kostum sem Hitler á RÚV í gær.
[Þetta innlegg var ritskoðað, enda bara tilgangslaus svívirðing út í náungann... Skabbi]
Já ferðu bara út þá leisist málið.
Þú verður nú að fara að vanda stafsetninguna hjá þér... Leysist en ekki leisist, dregið af orðinu laus... og svo er það farðu en ekki ferðu...
I eint talking 2 u!
Sýnist þetta vera einhver afbökun á ensku, nema hvað það á að vera svona:
I'm not talking to you!
I eint talking 2 u!
Sýnist þetta vera einhver afbökun á ensku, nema hvað það á að vera svona:
I'm not talking to you!
Whatever
Best er að leiða óvitann hjá sér og alls ekki svara honum. Það segir sérfræðingurinn allagvega og ég ber virðingu fyrir honum.