Já sælt veri fólkið. Ég er búinn að vera ánetjaður hér í nokkra dag en tek svo eftir því mér til skelfingar að kynning hefur misfarist. Ég veit að ég á langa leið til að ná einhverri virðingarstöðu hér og verð að lúta því að vera kallaður nýgræðingur með hægðatregðu eða hvað það nú var. Það kemur að því að dagarnir verða að vikum, vikurnar að máuðum og þeir að árum og þá verð ég skyndilega búinn að eiga mörg rafmæli en ég hef reynslu af svona tímaliðan frá því ég hætti að reykja. Vona að mér verði ekki sparkað út héðan áður. Baggalúturinn hefur verið mitt Prosac síðan ég uppgötvaði hann.
Ég var líka einu sinni nýr hér - en nú hef ég hlotið ákveðna virðingarstöðu...
Mitt ráð: Vertu bara rólegur og haltu kúlinu, þá byrja menn að fíla þig...
Hvaða vitleysa Seinheppinn minn. Ég ber enga virðingu fyrir þér.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Stendur upp
Spegill á þig!
Vertu velkominn Leir, vonandi áttu eftir að verða fyrirmyndar Gestapói. Ljómar upp
Velkominn Leir og njóttu vel.
Ekki hlusta á Seinheppinn, það ber enginn virðingu fyrir honum...
Brókar Seinheppin
Ekki hlusta á Seinheppinn, það ber enginn virðingu fyrir honum...
Brókar Seinheppin
Þú segir það, Bergfíll Svermann!
Hvaða vitleysa Seinheppinn minn. Ég ber enga virðingu fyrir þér.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Vertu hjartanlega velkominn. Tylltu þér nú hjá Dordingli og mér og fáðu þér sopa af hvannarótarbrennivíni. Nú ef þú vilt það ekki þá er líka til ákavíti. Réttur fram fleyginn
xT
snýst í hringi í tíuhjóla skrifborstólnum
Þakka góðar mótökur og áfengisboð. Lofa að segja aldrei ljót orð hér.[/g]