Var þetta tómt rugl í mér Sundlaugur?
Nei, ég sé það núna að Húmbaba stuðlar ekki rétt svo ég hefði með réttu átt að hoppa yfir hann. Þú er því á réttu róli, Kveldúlfur, og næsta hagyrðingi ber að flétta þráðinn við þína vísu.
Melt er ei í maga hey
mínum feiki stóra
fleiming gay er ein góð mey
gellan heitir Dóra
Nokkuð gott - þyrfti þó aðeins að rétta stuðlana í 3. línu, t.d. svona: "Fleiming gay er góð ein mey..."
---
Dóra stóra hasar hóra
hellir bjór í menn.
Tók hún fjóra karlakóra
í klofsins ljóra í denn.
Denn var þá, en það er frá,
þrömmum áfram lífsins veginn.
Æviskráin skoðast má
skýrt & nákvæmt, hinumegin.
---
Melta hrafnar hrútasafn
hávært jafnan krunka.
Í sjó þá kafnar krummanafn
í krumlu drafnar hlunka.
Hlunkur, farg, flykki, bjarg.
Finngálkns-varga-mýta.
Fiðlusarg, sellógarg.
Senjó-marga-ríta.
Margarítu fæ í flýti
fer þá lítið ónotað
kaupi hvítan klút og snýti
kraftur ýtir öll´af stað.
Staðnar hér allt hljóð og fer
hross og merarsnípa.
Enginn sér hin bláu ber
búið smérsins klípa.
Klípa fullar konur, sull
kneyfa bulla graður.
Tapa gulli teiga drull,
togna lulla staður.
Staðan gerast góð nú fer;
gala hér nú allir hanar.
Burt af skeri, blauði her
- bless, Amerífokkingkanar!
Amerífokkingkanakokks
ketið lokkar unga
gefur þokkalega loks
lötum skrokka þunga.
tileinkað McDonalds
þungamiðjan - mammonsgyðjan
mannkynsniðjaheimskupör;
verkahryðjan, hrákasmiðjan,
hryllingsviðjagleymskuför
Rómantísk dýrkeypt langhenda af ástum í sveitum.
fer nú kúin kát úr búi
kímin púar lag
bóndinn lúinn, beljugrúi
að bibba hlúði í dag
Dagsljóss glætan gerist mæt
góð mun bæta hjómið.
Gróðurs vætan vökvar sæt
víst mun kæta blómið.
Blómin eru björt sem pera
blindur fer að öðlast sýn
eitthvað hér vill opin skera
í augun ber nú ljósið skín.
Skín á hnjúka sólin sjúka,
sjávarlúka klumpast.
Bráðnar mjúka, frerar fjúka
fannar dúkar krumpast.*
Krumpist lærin, konan ærist,
köstin fær hún mörg á dag.
Ekkert mærin, Anna nærist,
enda fær hún bráðum slag.
Slagkraft færir foldu - ær,
fögur gæran hvíta.
Rollumærin mjög er bær,
móbrúnt nær að skíta.
Skít ég út´ í einum hnút.
Ósköp þrútinn maginn.
Gaf úr kút mér gambr´ af stút
gamla pútan bagin.[img][/img]
[quote][i][b][color=olive][/color][/b][/i][/quote]
Bagalegt er barnið tregt,
blessað hvekkta greyið.
Var það hrekkt að hlegið, blekkt,
hrætt, á klekkt og vegið.
Vegur lá hér vestan frá
voða smár og þröngur,
stóratá mín steina sá
og stýrði frá við göngur.