Ég veit ekki til þess að þetta hafi klikkað áður. Ekki frekar en með eyðingu Úrvalsrita hjá þér - sem ég botna ekkert í.
Hafa aðrir lent í þessu?
Einstöku sinnum. Velt því fyrir mér hvort það væri Eldref að kenna, því ég hef ekki orðið var við þetta á IE en nota hann að vísu lítið.
En það fer í gegn fyrir rest, en 1-2 mín. eru lengi að líða þegar maður bíður svona.
Og eitt enn. Þegar svona gerist hef ég tekið eftir því að annar hefur komist á milli.
Þó ekki viss um að það sé í öllum tilfellum
Gæti verið að það síflist smá stund ef tveir eða fleiri sendi samtímis?
Hjá mér hefur komið sjálfkrafa nafnið Haraldur Austmann ef ég ætla mér að svara þræði, óinnskráður.
-
Hjá mér hefur komið sjálfkrafa nafnið Haraldur Austmann ef ég ætla mér að svara þræði, óinnskráður.
-
Þetta ætti í það minnsta að vera komið í lag.
Ég veit ekki til þess að þetta hafi klikkað áður. Ekki frekar en með eyðingu Úrvalsrita hjá þér - sem ég botna ekkert í.
Hafa aðrir lent í þessu?
Ég get ekki eytt, einu einasta úrvalsriti núna...
Á að vera í lagi núna.
...og ég flyst sjálfkrafa einnig, þannig að ég er sáttur... þú átt inni hjá mér Ákavíti fyrir snúninginn Enter minn...
Kemur aftur inn alblóðugur, móður og másandi. Lætur sig falla örmagna í græna hægindastólinn í horninu
Fúff. Þetta var sá alviðskotaversti örgjörvalalli sem ég hef átt í höggi við.
Sofnar
Sér hvað Enter er illa farinn eftir viðskiptin við lallann... þú átt skilið lofkvæði:
Vesen er á væsklingum
villum á er bent hér
Í Baggalútabæklingum
bestur þykir Enter
Ef ég myndi brjótast inn á aðgang Bagglýtinga óvart myndi ég ekkert vera að láta Krulla vita - strax. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ef ég myndi brjótast inn á aðgang Bagglýtinga óvart hugsa ég að ég myndi ekkert vera að láta Krulla vita - strax. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Bara svo þið vitið það, þá var þetta ég sem skrifaði þetta... Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Jæja, nú er Enter líklega búinn að hvíla sig og þá er rétt að benda á smágalla í viðbót... hehe... ef maður er inná hvað er nýtt og ýtir á merkja allt lesið, þá gerist ekki neitt... Þetta er þó það lítill smágalli að mér er nokkuð sama...
Tengillinn er einfaldlega vitlaus, hann vísar beint á www.baggalutur.is.
Svo virðist sem nú nýverið hafi Gestapó tekið upp á því að hætta að flytja mig sjálfkrafa yfir á svarið mitt eftir ég hef sent það og festist ég á síðu þar sem á stendur:
Upplýsingar
Þetta hafðist - nú ættir þú að flytjast sjálfkrafa á spjallborðið aftur.
Þetta vandamál heldur áfram að vera til staðar, sama í hvaða tölvu ég er...

Gæti þtta tengst hopp-upp gluggum eða Eldveggjastillingum??
Þetta virðist vera í lagi í dag, ósköp dintóttar þessar tölvur...