Sælt veri fólkið, Rósin heiti ég og er allveg splunku ný hérna á Gestapó en er þó búin að fylgjast með Baggalút frekar lengi. Vildi bara kynna mig því ég efast ekki um að ég eigi eftir að vera hérna lengi.
Allir geta á sig blómum bætt, vertu velkomin og njóttu vel.
Æ þakka þér fyrir Hr. Heiðglyrnir, gaman að fá svona góðar móttökur
Vökvar Rósina
Velkomin, megi þér vegna ágætlega á Gestapó.
Komdu blessuð og sæl. Megir þú frelsast úr viðjum kjötheima og eiga hér góðar stundir.
Mikið eruð þið öll sæt eitthvað. Ljómar upp (Bara að prófa fítusana)
Satt satt, ég er krútt. Allir vita það.
Já þú virðist vera það, og takk fyrir vökvunina...hvernig gerir maður sinn eigin græna texta annars?
Ef þú vilt skrifa þínar eigin sviðslýsingar skrifarðu bara einhvern texta, heldur honum inni með músartakkanum og smellir á 'Svið'.
Allt í lagi, prófa það. Hmmm hvað skal skrifa Knúsar alla fyrir að vera svona næs við hana
Já, svo er líka hægt að skrifa s-in sjálfur, eins og ég geri - en ég er auðvitað erkinörd. Ekki taka mark á mér.
Einnig mun vera hægt að smella á alt+t fyrir þá sem eru lyklaborðsnörd. smellir á alt + t
Já ég skil, þetta er líka sniðugt Punktar hjá sér að það sé allveg hægt að taka mark á Þarfagreini
Komdu sæl og blessuð vonandi verður dvöl þín hér þér og öðrum til mikillar ánægju.
Sæll sjálfur, og það vona ég líka Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið