Hmm já ég sé það núna. Ísdrottning lagði til þetta nafn á blaðsíðunni á undan. Það hafði ég ekki lesið. Heiðurinn færist því umsvifalaust á Ísdrottningu. Ég hef því einungis skírt einn mann.
Skírn er trúarathöfn. Þú nefnir menn og hluti en skírir þá ekki, nema náttúrulega að þú sért prestur.
Beygir sig niður. Horfir á Smábagga. Myndar o með vísifingri og þumli, færir vísifingur aftan að dindli Smábagga og skýtur honum út í hafsauga.
Smásmugulegur tittlingaskítur í strumpnum í dag.
Ég er höfundur míns eigins nafn!
Sussumsvei að þið skuluð eigna ykkur heiður annara, skammist ykkar, flón!
Ekki aðeins er þetta afar ósmekkleg og ómakleg athugasemd og ekki í anda heiðursmanns heldur eru og stafsetningavillurnar þér slælegur vitnisburður.
Ef þráðurinn er lesinn yfir kemur berlega í ljós hvaðan tillögur betra nafns en spánskur komu og þykir mér a tarna heldur ódrengileg framkoma.
Ég tek undir með Ísdrottingu. Hún á skilið að fá heiðurinn fyrir nafngiftina. Ég vona að það særi ekki matsjó stolt Spanjólans of mikið.
Andköf heyrast í salnum. Fólkið fylgist spennt með viðbrögðum Ísdrottningar
Hún er strympan mín!
Steytir hnefa í átt að Spanjólanum
Andköf heyrast á ný og það líður yfir unga dömu
Talar inn á í golflýsingarstíl
Dömur mínar og herrar. Atburðarrásin hefur tekið óvænta stefnu. Getum við verið að horfa upp á blóðugt einvígi Smábagga og Spanjólanýliðans um ástir Ísdrottningar? Við sjáum hvað setur.
Sest niður með poppkorn
Loksins er ég ekki miðpunkturinn í fjölskyldudramanu!
Fær sér sæti í stúkunni með júmbó poppdall og tuttugu maltflöskur
Öskur heyrast á áhorfendapöllum þegar Tígrisdýr með poppkorn sest þar. Áhorfendur flýja í ofboði í hæfilega fjarlægð.
Heldur áfram í golflýsingarstíl
Undrin halda áfram að gerast, nú hefur Tígrisdýr komist upp á áhorfendapallana og virðist vera að gæða sér á poppkorni. Við vonum að dýrið verði til friðs áður en dýrahöndlarar geta skotið það með deyfipílum.
Kemur inn með Blút og snakk og kemur sér þægilega fyrir
Rotar dýrahöndlarana
Ekkert svona, við fáum að fylgjast með.
Sest niður með poppkorn
Loksins er ég ekki miðpunkturinn í fjölskyldudramanu!
Sniðugt! Nú fáum við að sjá hvernig þetta lítur út utan frá
Hún er strympan mín!
Steytir hnefa í átt að Spanjólanum
Beytir sömu aðferð og Hakuchi með þumalputtanum og vísifingri
Ertu ekki orðinn aðeins of gamall í þetta kallinn?
Bítur í vísifingurinn á Spanjólanum og heldur sér þar eins og steinbítur
Éfgh fldi n'kki!
Miklar geðshræringará áhorfendapöllunum. Sumir fagna ákaft, aðrir púa. Öryggisverðir verða að yfirbuga æstan fjölskylduföður sem höndlar ekki spennuna
Hækkar sig upp í Samúel-Örn-Erlingsson-stíl
Ooooog nú er allt að gerast! Spanjóli kemur öllum að óvörum með afbrigði af hakuchisókn og Smábaggi fær ekki rönd við reist!
Nei bíðum við!
Nuuuuuujjjnuuuuujjnuuuujj, sjááááið þetta! Smábaggi náði að verja sig glæsilega og hefur heljartak á Spanjóla! Þvííílíkur umsnúningur
Lýðurinn tryllist. Unglingstelpur falla í yfirlið.
Kolbrjálast úr spenningi og hellir poppi yfir nálæga áhorfendur
Tekur upp banjóinn, notar Smábagga sem nögl
Jæja þá...
♪Þú mátt taka'ana því ég vil ekki haf'ana því hún er allt'of... köld
♪Þú mátt taka'ana því ég vil ekki haf'ana því hún er allt'of... köld
Nokkrum glösum síðar...
♪Undir blááááhimni blíðsumarsnææætur... Hvað kom svo næst?
ahh, fallegt lag Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann