Hola, mínir kæru vinir, splúnkunýr kem ég frá Spáni, vonandi verður mér tekið vel þrátt fyrir spurningarmerkið, vonandi tekst mér að ná, hvað voru það 10 póstar fyrir mynd?
En já.. Lengi hef ég dundað mér við að skoða fréttavef Baggalúts og brá mér heldur í brún er ég sá að ritstjórn hafði tekið sér sumarfrí! En sem betur fer kom þetta aftur eftir nokkra stund, og þá rakst ég á þetta svokallaða "Gestapó". Eins og þið eflaust sjáið þá skráði ég mig á það, las mér dálítið til hér fyrst og kynnti mér gang mála, ætli maður fari ekki að stíga úr skugga feimninar og láta aðeins heyra í sér!?
nóg í dag, - Ciao , Spánskur kveður.
Urrar mjög seiðandi Loksins kominn einn exotískur fyrir okkur stelpurnar.Ljómar upp
Ekki bara það, heldur sólbrúnn og seðjandi beibí!
Svo á ég líka hatt.
Hann á hatt!Hrökklast aftur á bak og hrasar við Míns má eiga þennan strák plísplísplísplís plíííííís
Hey, ég er ekki einnota !
Ég er fyrir alla! Tvær í einu væri frábært!
Ofanvert á ekki við um Leðurhommann
Bíddu viltu að tvær konur skipi þér að ryksuga með hattinn í einu? Vó þú ert svoldið kinkí.
Mér lýst vel á þetta.
Hann á hatt.. en mér virðist hann ekki eiga önnur föt
Glottir
Æ greyið
Velkominn og Skál!
Skál Skabbi minn, af því sem ég hef best séð ertu hið mesta skáld! xT
Þú ættir að gefa út bók!
Velkominn og Skál!
Skál Skabbi minn, af því sem ég hef best séð ertu hið mesta skáld! xT
Þú ættir að gefa út bók!
Kannske maður geri það... Exótískar hugleiðingar um Ákavíti, gæti hún heitið
Velkominn og Skál!
Skál Skabbi minn, af því sem ég hef best séð ertu hið mesta skáld! xT
Þú ættir að gefa út bók!
Kannske maður geri það... Exótískar hugleiðingar um Ákavíti, gæti hún heitið
Abbabbabb mitt orð! Ég vil fá prósentu...háa.
Skýst laumulega á milli Skabba og Laufblaðsins
Ég skal vera prósenta!
Velkominn og Skál!
Skál Skabbi minn, af því sem ég hef best séð ertu hið mesta skáld! xT
Þú ættir að gefa út bók!
Kannske maður geri það... Exótískar hugleiðingar um Ákavíti, gæti hún heitið
Abbabbabb mitt orð! Ég vil fá prósentu...háa.
Þar sem það verða líklega eingöngu óseldir kassar af bókinni, þá færðu a.m.k. einn kassa hehe...
Velkomin Spánskur. Ætlið þér að djamma og djúsa með sveittan brúsa?
Skál!
Mér þykir líklegra að það geri hann með Quick-Tan brúsa (eins og í laginu, þú veist)
Gefur Vamban selbita á nefið. En ekki mjög fast samt, hann má ekki tapa kvenhyllinni
Ég vil benda stúlkunum hér á að Spánverjar með hatta eru ekki eini aðlaðandi þjóðflokkur heims. Við Svisslendingar þykjum bæði reglusamir og stundvísir og þó við eigum ekki hatta eigum við flestir glæsileg armbandsúr.