Ég hefði svo sem mátt vita að þú vissir það betur en ég. Ég hef greinilega eitthvað misreiknað mig ...
Annars finnst mér umræður af þessu tagi hreint ekki eiga heima hér, frekar en annað raunheimatengt.
Þú lætur nú frá þér fara ansi margt, sem ekki telst viðeigandi, hvorki hér né annars staðar..!..
Þið eruð kosmískar eigindir þversamfellunnar. Pælið í því.
Leggur fram friðarpípu og býður Smábagga og Heiðglyrni að fá sér
Reykið friðinn og finnið alsælu sinnuleysisins flæða um æðar ykkar.
Sérlega indælt..!..
Jájá, hann slefar ekki. Andaðu djúpt að þér. Ferðastu á stjörnuryki að rótum sælulindar forlagadalsins.
Vertu velkominn Steggur sæll.
Hér hefuru flösku af úrvals kóbalt bættu ákavíti til að sötra á.
Réttir Stegg sérstakan árgang af baggalútísku keisaraákavíti
Leggur niður haglarann og tekur við friðarpípunni
Á nú að fara að tæla saklausan nýliðann Rasspabbi minn.
Nei nei alls ekki...
Veltir því fyrir sér hvernig hvernig best sé að snúa sér út úr þessu
Ehh nei sjáiði bara!
Bendir í óðagoti til himins svo allir líta upp í loftið. Stingur af
Mér finnst mysingur vondur!
Ég sé að umræður hér á "Steggurinn mættur!" þræðinum mínum hafa farið út í friðarsáttmála aðgerðir, ekki er það samt verra!
Hleypur burt af því að veiðitímabilið er byrjað og hann sá haglarann hanns hakuchis áðan
Sest á bakið á Steggi
Hott hott! Hott hott segi ég!
Tekur köttinn, hendir honum út og syngur eins og Þórður húsvörður.
Fær lagið á heilann og byrjar að syngja
♪
Úúú...t ♪með jóla♪köttinn!♪
♪
Kvikindið er ♪♪loðið eins ♪♪og ljón.
Úúú...t með jólaköttinn!
Hann hefur unnið heljamikið tjón♪♪
Valhoppar í burtu syngjandi sömu línurnar aftur og aftur
Grefur sundlaug og fyllir hana með mangó- og appelsínusafa
Ég vil hafa það á tæru að ég er ekki jólakötturinn, langafabróðir er í fríi á Möltu.