— GESTAPÓ —
Galli hjá mér eða þér...
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 7/8/05 01:14

Svo virðist sem að þræðir sem ég svara haldi áfram að vera nýjir í mínum augum þó þeir ættu ekki að vera það, hvort það sé drykkju að kenna, slæmum vafra eða villu í hugbúnaði veit égekki... vildi aðeins minnast á það..

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anar 7/8/05 01:39

Er ekki bara flott að halda í nýjungar? Nýtt er betra, eða það segir afi í það minnsta. Nei bíddu, amma segir það. Afi segir "troddu þessu upp í r****atið á þér og snautaðu svo út!"

~Sýnin er borin af ljósinu~

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 8/8/05 20:46

Skabbi skrumari mælti:

Svo virðist sem að þræðir sem ég svara haldi áfram að vera nýjir í mínum augum þó þeir ættu ekki að vera það, hvort það sé drykkju að kenna, slæmum vafra eða villu í hugbúnaði veit égekki... vildi aðeins minnast á það..

Já, ég hef líka rekið mig á þetta. Stafar þetta ekki af því að á gamla lúkkinu urðu þræðirnir hvítir eftir skoðun en ekki á þessu nýja?

Og Anar, ég ætla bara að segja þér þetta hreinskilnislega. Þú ert fífl.

Sönnun lokið.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 8/8/05 20:51

Þetta með lesna og ólesna þræði hefur verið gegnumgangandi vandamál allt frá upphafi. Það er grunnkerfinu að kenna og ég hef ekki lagt það á tækniórangútanana að kryfja það. Best hefur mé rreynst, þegar þetta verður illþolanlegt, að hreinsa til í smákökuboxi vafrans (e. delete cookies).

Og verið þið almennileg við hann Anar, ég sé ekki betur en að þetta sé hinn vænsti náungi, þó hann raunar virðist búa í annarri vídd en við hin.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 8/8/05 22:27

Er ánægður með hann. Það eru fyrst og fremst stelpurnar sem eru fúlar. Hann er eins og þú segir á annarri bylgjulengd eða vídd og þær vita ekki hvernig komast á að honum. Það pirrar þær. En gott að fá nýan flöt á tvívíddina hér.

En vel á minnst! Hvenær kemur Baggalútur í þrívídd?
Það yrði nú aldeilis flott að svissa á milli Doom 3 og GESTAPÓ þannig að það tæki smá stund að átta sig á hvoru megin maður væri.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anar 10/8/05 02:48

Þakkir eru þarfar. Blessanir geta snert menn á fleiri vegu en einn. Væri ég prestur myndi ég taka stíga skrefinu hærra og skýra ykkur upp á nýtt. Heiðursmenni og herramenn. Herra Syfjaður var samt alltaf í uppáhaldi.

~Gleði er ekki bara brosins vegna~

» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: