— GESTAPÓ —
Leikur: Hver er maðurinn?
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3, 4, 5
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/10/03 14:21

Þykja myndirnar sem hann hefur leikið í vera frekar ómerkilegar ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
spesi 1/10/03 14:28

Ekki allar, en þetta er náttúrulega afstæðast af öllu afstæðu...

27 stig

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Hómer Simpson 1/10/03 15:06

Eru fleiri úr fjölskyldunni í "bransanum"?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
spesi 1/10/03 15:07

Jamm

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/10/03 15:10

Byrjar fornafn hans á bókstaf sem er aftar í stafrófinu en M ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
spesi 1/10/03 15:16

Jamm

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 1/10/03 16:10

Ef þetta er ekki Patrick Wayne Swayze þá ætla ég að gerast svo frakkur að leggja fram vantraustsyfirlýsingu á þennan leik, að annað hvort sé þessi ákveðni einstaklingur ekki til eða þá að einhversstaðar leynist rökvilla í svörunum (eða spurningunum) á þessum þræði. ‹Strunsar fram af sviðinu og lendir á höfðinu›

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
spesi 1/10/03 17:14

Mikið rétt!
Glæsilegt, Glúmur! Þér eruð augljóslega afar magnaður einstaklingur.
Þér gætuð meira að segja verið frændi minn...

Næsti leikur í hinni sívinsælu Leikjaröð Spesa er væntanlegur á morgun, fimmtudaginn 2. október 2003.

Sæl að sinni.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Smali 1/10/03 20:29

Iss! ‹Hnuss!›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
spesi 2/10/03 09:29

Ekki tapsár, Smali minn!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 2/10/03 09:31

Spesi mælti:

Mikið rétt!
Glæsilegt, Glúmur! Þér eruð augljóslega afar magnaður einstaklingur.
Þér gætuð meira að segja verið frændi minn...

Næsti leikur í hinni sívinsælu Leikjaröð Spesa er væntanlegur á morgun, fimmtudaginn 2. október 2003.

Sæl að sinni.

Jah í fyrstu hugsaði ég með mér að harla ólíklegt sé að ég sé svo frændsæll, en eftir að hafa lesið Frændljóð 7 fór ég að efast um einlægni þessara vangaveltna hjá þér Spesi.
Ég mun þó líta í Íslendingabók við fyrsta tækifæri og athuga hvort ég finn þig þar, þætti mér þá Ísland orðið lítið ef ég ætti frænda á "Internetinu".

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
spesi 2/10/03 09:42

Í mínum huga telst það til hróss að vera álitinn frændi minn.
Sumir frændur eru bara erfiðari en aðrir, sbr. Frændaljóð 7...

LOKAÐ
        1, 2, 3, 4, 5
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: