Jæja, nú hefst leikurinn "Hver er maðurinn?"
Þetta er afskaplega einfalt:
- Tilgangur leiksins er að komast að því hver maðurinn er.
- Konur eru líka menn.
- Aðeins má spyrja Já- eða Nei-spurninga.
- Leikstjórnanda leyfist að svara með "Veit ekki" eða einhverju álíka ef ómögulegt reynist að svara spurningu.
- Aðeins einni spurningu verður svarað í einu.
- Leikurinn getur tekið tíma, sýnið því biðlund.
Reynið að spyrja ekki hvert ofan í annað; ef komin er spurning sem eftir á að svara skuluð þér bíða með yðar spurningu þar til svarið við hinni fyrri er komið. Leikstjórnandi áskilur sér rétt til að eyða öllu sem inn á þráðinn kemur fyrir aftan ósvaraða spurningu.
Og nú hefst leikurinn: Hver er maðurinn?
Er hann íslenskur ?