Enginn?
Gleraugna er greyið eitt
gáfnalegur ormur.
Sumir hata, brosir breitt
blíður þá er stormur.
Ekki heitir hann Sigmar... vissi ekki að þetta væri svona erfitt... síðasta orðið er sterkasta vísbendingin...
Aukavísbending:
Brandara býður oft ormur,
blíðlyndur þykir sá gormur,
stendur og potar
með stafinn hann otar
stundum er kallaður stormur.
Jú jú... Vímus má ekki bjóða þér að halda þræðinum gangandi... annars má hver sem er taka réttinn...
Hótar öllu heilögu,
hatar Amerícani.
Notar trausta trúsögu,
tvíburana-bani.
Osama bin Laden
Hárrétt. Ljómar upp og niður, út og suður
Eitthvað söng hann áður fyr
einkum dóttir núna.
Í einni borg var um hann styr
í annarri vann hann trúna.
Þessi er góð. Það urgar í kvörnunum, en neistar ekki enn
Ég held það muni ekki hætta að urga í kvörnum Dordinguls í bráð svo ég kem með nýja gátu...
Einn af fimm og oft í kjól
alltaf nokkuð lúinn.
Oft sást hann við Arnarhól
en nú er hann búinn.
Ætli þetta sé ekki hinn umtalaði Randver?
O jú... þessi var alltof létt...