Hér er ekki leitað að orði heldur persónu. Þetta má vera raunveruleg eða skáldsagna persóna, vel þekkt..!..
Hér er sú fyrsta.
Norðurljósin seldi, sagði
sagan okkur
Skála og skipum lagði
skáldið nafnið nokkur
Aha... það myndi hafa verið Einar Ben.
Einar Ben, mikið rétt, kæra Norn þú átt leik
Æi... er þetta svona leikur Starir þegjandi út í loftið
Ég er ómöguleg í að gera vísnagátur.
Má ekki einhver annar spreyta sig?
Ég vil bara giska.
Af hverju finnst fólki svona asnalegt að segja -ediktsson?
Og næsta.
Pípuna´ann, tóbaki í tróð
úr tyrkneskum inniskó
Grýpur´ann, af miklum móð
misindismanneskju hró
Og það var rétt Skabbi minn, komdu nú með eina erfiða Muhahaha..!..
Stelst til að setja þessa inn...hver er maðurinn..?..
Ástir kvenna, í kvikmyndum
kvistur hlátur eykur
Lygilega léttlyndum
í ljósum borgar leikur
Charlie Chaplin
Jamm. það var nú rétt
Hvað eða hvert var það?
Þrjár fyrstu línur gefa sterka vísbendingu.
Sú fjórða er óljósari.
Nafnið veg einn varðar
og vík í firði fjær.
Tengist hólma Harðar
hafs úr austri nær.
Örlítil mistök. Ekki er spurt um einstakling.
En læt þetta standa.
Nú verð ég heldur betur að fara að lesa mig til um Austfirska landafræði!
Hvorugt. Þó ég spyrji ekki um einstakling eins og á að gera hér,
þá tengist svarið fólki. Nú ert þú búin að fá gott forskot á svefnpurkurnar