Ég heiti Sjöfn Schiöth og er ný hér. Mér skildist að hér ætti maður að kynna sig.
Velkomin Sjöfn.
Þú ert nú þegar búin að sanna ágæti þitt með að drekka með okkur Grýtu á næturgeltinum.
Ljómar upp
Velkomin, vonandi áttu eftir að hafa það gott og gaman hér með okkur.
Skálar fyrir Sjöfn og býður velkomna með kassa af norðlensku ákavíti
Eigum við ekki að fá okkur sjúss í tilefni dagsins?
Það finnst mér.
Glottir eins og fífl
Jah, hvað skal segja? Er þetta margnota spotti sem við höfum hér í höndunum? Þið munið samt eftir mér vona ég, af hinum spottunum. Ég leik ekki svona leik! Þið þekkið mig víst af hinum spottunum. Hr. Greenspan man í það minnsta eftir mér.
~Solo steik er bíll án bensíns~
Greenspan man eftir öllum, enda sköllóttur.
Já og velkomin Sjöfn.
Velkomin á vef þennan og njóttu líðandi stundar og þeirrar sem kemur þar á eftir.
Iss... ætli Sjöfn sé ekki eitthvað skyld Glúmi, Ormlaugu, Cokedósinni og félögum?
Það gerði Gvendur hinn skrýtni líka...
Fuss nei, hann lyktaði alveg eins, þó lyktin hafi ekki verið eins súr kannske.
Einhvern veginn hef ég grun um að Sjöfn þessi sé í nánum tengslum við einhvern annan gestapóa. Hún virðist kunna nokkuð til verka hér.
Hún er ekki á mínum vegum það get ég svarið við guð og aðra vætti.