Mér hafa borist til eyrna skelfilegar fréttir. Nýliðun á Gestapó er ekki framkvæmanleg eins og er. Mér er kunnugt um fólk sem bíður í röðum eftir því að skrá sig - fólk sem heyrði ekki af þessu merka fyrirbæri sem Gestapó er fyrr en núna í sumar, en þurfti frá að hverfa sökum þess að vefurinn var í sumarfríi. Nú er þetta fólk hangandi utan við dyrnar og heyrir glauminn af gleðskapnum, en kemst ekki inn sökum tæknilegra vandkvæða.
Í stuttu máli sagt: Nýskráning virkar ekki. Er ekki hægt að laga það svo að fólk geti komið og séð hvað þetta snýst allt saman um?