Jæja góðir hálsar, leg sem og gítar, nú hefi ég náð þeim merka áfanga að hafa lagt inn 10.000 sinnum á Gestapó. Njótið vel!
Til hamingju!
gefur Ívari ræfilslega pottaplöntu í verðlaun
vökvar
Til hamingju með það, hr. Ívar. Með mínu áframhaldi náum vér áfanga þessum eftir níu ár eða svo.
Ég bíð spenntur
Gerist boðflenna
Ég á langt í að ná þér Ívar minn.
Já og þú átt líka langt í að verða hálfdrættingur á við mig.
Satt er það. bæði hvað varðar hæð, þyngd og breidd.
Brestur í óstöðvandi grát
forðar sér þar sem umræðan um aukakílóin virðist vera að komast af stað
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Vissi að þetta mundi ekki klikka.
Innilega til hamingju Íbbi minn, réttir fram tveggjakílóa pakkningu af Cascali rommkúlum (það var sko á tilboði í Fríhöfninni -Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið) og vænni flösku af landa.
Splæsir svo knúsi á kappann
forðar sér þar sem umræðan um aukakílóin virðist vera að komast af stað
Annars fara aukakílóin þér bara vel, efast stórlega um að ég væri svona mannalegur með þau.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Tilhamingju! Ívar ístrubelgur Sívertsen... Þarf auljóslega að herða mig við bullið til að komast í 1. flokk.
Hvað þá úrvalsdeildina. En eins og við vitum að þá er hér engin elíta heldur bara úrvalsdeild.