Hvað eru spottarnir margar tommur?
Tekur upp reiknivél og slær inn tölur í gríð og erg
Flest vitum við að tomma er ekki bara tomma. Fet er ekki bara fet. Það eru nefnilega til enskar útgáfur og svo íslenskar (danskar myndu gömlu lénsherrarnir vilja segja.)
Ég ætla aðeins að rifja þetta upp með ykkur.
Danskt/íslenskt
1 míla = 7532 m
1 faðmur = 3 álnir = 188,4 cm
1 áln = 2 fet = 62,77 cm
1 fet = 31,39 cm
1 tomma = 2,61 cm
Enskt
1 míla = 1609 m
1 yard = 3 fet = 91,4 cm
1 fet = 12 tommur = 30,48 cm
1 tomma = 2,54 cm
Út frá þessum samanburði get ég séð að Íslendingar eru með lengri þumla en Bretar.
-
Því má bæta við að eintalan af álnir er alin og tomma gæti vel verið þýtt yfir á íslenzku sem þumlungur.
En, af hverju segja þá Íslendingar: ég fer ekki fet? Væri ekki nær að segja: ég fer ekki 31,39 cm? Eða jafnvel: ég fer ekki 30,48 cm?
Það var að daga fyrir mér að Baggalútía á ekkert fet! Hvurskonar heimsveldi er það sem á sér ekkert fet?
Ég tilgreini hérmeð hið Baggalútíska fet en það skal jafngilda 0,172118 metrum. (Einnig þekkt sem Bruss-elskt fet)
Þetta er vitræn tillaga. Fet undir okkur. Jibbí.
Þú fetar veg viskunnar í þessum efnum Glúmur.
Baggalútískt fet skal það vera.
Svo má hugsa sjer að bæta við fleiri mælieiningum og/eða forskeytum. Æskilegt er að hafa þau afar flókin til að utanaðkomandi eigi sem allra erfiðast með að skilja þau.
Baggalútískt fet.
Í einu Baggalútísku feti eru 33 Baggalútískar tær.
Í einni Baggalútískri tá eru 4 Baggalútískar neglur.
Í einni Baggalútískri nögl eru 27 Baggalútískar afklippur.
- nú er bara að fara að reikna!
Þú fetar veg viskunnar í þessum efnum Glúmur.
Baggalútískt fet skal það vera.
Þú átt þá væntanlega við „Þú 30,48 cm-ar veg viskunnar“
Nú, svo eru 4 fet í einni kóbaltstöng, sem mun vera grunneining. Sbr. járnstönginni sem gerð var til að ákvarða metrann, meterinn var reiknaður út frá fjarlægðinnar á milli Miðbaugs og Norðurpóls. Kóbaltstöngin er mæld á algjörlega annan máta. Nefninlega fjarlægð milli Miðbaugs og Suðurpóls, deilt með x (þar sem x er jákvæð heiltala sem passar þarna svo dæmið gangi upp).
Því má bæta við að eintalan af álnir er alin og tomma gæti vel verið þýtt yfir á íslenzku sem þumlungur.
Ég þakka alúðlega aðstoðina Fergesji. Það má alltaf stóla á þig, kæri vin.
Mig langar endilega reyna að stýra þræðinum aftur inn á rétta braut. Ætlunin var að ræða misræmi í þumlalengd Breta og Íslendinga.
-
Ég þakka alúðlega aðstoðina Fergesji. Það má alltaf stóla á þig, kæri vin.
Mig langar endilega reyna að stýra þræðinum aftur inn á rétta braut. Ætlunin var að ræða misræmi í þumlalengd Breta og Íslendinga.
-
Það hefur enginn áhuga á því!
En hvað með faðminn, þar sem faðmurinn á að vera þrjár álnir eða 188,4 cm? Má þá segja: "Má ég þriálna þig?" eða komast í 188,4 sentimetrinn þinn?
Góð spurning. Svo má einnig velta fyrir sér hvort ekki sé undir einhverjum kringumstæðum hægt að komast í fet, í stað álna.