Limbri:
Með 6 borð.
Prufaðu að velja svæðið fyrir neðan google stikuna... sjáðu hvað er mikið pláss neðan við það á síðunni. Skoðaðu svo neðst í source code og þá ætti þetta að smella Ljómar upp
Mér líst vel á þessa þraut, ætla að glíma við hana á meðan Baggalútur er í fríi.
Takk fyrir Smábaggi að benda á þennan leik.
Einmitt það sem ég þurfti til að skemmta mér við á rólegu vöktunum í sumar.
Það væri ágætt ef þú hefðir svona hreina spilli hvítletraða, Norn.
Afsakið.
Ég var á hlaupum í vinnunni og skellti þessu bara inn umhugsunarlaust.
Þetta er samt ekki lausnin. Bara bending í áttina.
Biðst samt innilegrar afsökunnar, þetta var klaufaskapur.
Jæja, allt í lagi. Ég þorði reyndar ekki að lesa þetta og gat því ekki verið viss ...
Gallinn við þessa þraut er að svo margir hafa glímt við hana og skrifað um hana á netinu, þar af leiðandi leiða margar lausnaleitir mann að raunverulegum lausnarorðum en ekki þeim vísbendingum sem stefnt var að.
Leiðindamál.
Brestur í óstöðvandi grát
Fundið (og ég þurfti ekki einu sinni vísbendingu)! Stig 8.
Nú er ég alveg fastur í þessu - í tvennum skilningi.
Er ekki að fatta 10. (gúglaði reyndar 7)
Lemur í sviðið
Ég ... ég fatta þetta ekki!
Sparkar út í loftið
Út á hvað gengur þetta eiginlega?
Út á hvað gengur þetta eiginlega?
Það eru vísbendingar á hverri síðu.
Maður þarf að skoða myndina, urlið, eða source kóðann (eða eitthvað annað) til að finna username/password (eða eitthvað annað) til að komast á næsta borð.
Endurtakist eftir þörfum.
Ég er ekki að skilja þennan leik, á maður að skrifa eitthvað með lyklaborðinu?