Ég erkominn á topp 100, eins og Sæmi fróði.
Ég er bara á áttunda degi í Baggalútíu. Getur þetta verið? Er þetta viðeigandi?
Það fer eftir því hvaða orðspor þú vilt fá... að senda inn innlegg eingöngu til að fá baunir er ekki gott... að senda inn innlegg af því þú hefur eitthvað að segja, eitthvað sem er skemmtilegt (eða leiðinlegt ef þú ert þannig)... er málið... svo eru það leikirnir... það er ekkert að því að taka þátt í þeim á fullu og er það ekki tekið sem baunasöfnun, heldur þannig að þú hafir mjög gaman af leikjum... það er mín auðmjúka skoðun... Skál...
Ég vil benda baunasöfnurum á "Hey, komdu með í baunamó" þráðinn. Þar er hægt að andskotast að vild.
Það mætti brenna baunamóinn.
Það mætti brenna baunamóinn.
Mmmmmm, bakaðar baunir! Sleikir útum
Flakk um íslenskar sveitir hefur neikvæð áhrif á meðaltalið hjá mér, verð líklega að vinna það upp!
Ég vil bara káboj-baunir á diskinn minn. Og bixy-stew með.
Var þetta ekki félagsrit albins?
Mikið rétt. Það var þá ekki skrítið að ég skyldi ekki finna þráðinn.
-
Svona til gamans, þá tók ég aftur saman smá static
Annarsvegar topp 10 og hinsvega nokkur sæti á leið að hundraðinu..
Það væri nú skemmtilegt ef þér gætuð einnig tekið saman yfirlit yfir það hverjir hefðu flest og hverjir fæst innlegg á dag að meðaltali.
Spurning hvort ég fari ekki að sækja um stöðu eða ráðuneyti.
Allavegana, er ég enn og aftur á ferð með nýjar tölulegara upplýsingar sem ég og félagar mínir Excel og External data tókum saman til fróðleiks og skemtunar.
Þessi mynd er kanski ekki öllum vel læsileg, því hef ég tekið upp þá nýmóðins aðferð að hafa þetta á Portable Document Format eða PDF.
http://acme.to/albin/images/Baggalutur/afkastalisti.pdf
Njótið vel
Er rautt eitthvað hættumerki? Er til einhver meðferð við Baggalútisma?
Rautt er oft hættumerki, en þarf ekki að vera það akkúrat núna.
Táknar aðeins að þú sért með flest innlegg að meðaltali á dag af þeim 50 sem eiga flest innlegg. Ekkert annað.
Við erum búnir að vera að ræða þetta lengi á Tölfræðiþræðinum á Næturgeltinum. Gallinn er bara sá að flestir tölfræðingar eru sofandi þegar gölturinn er opinn.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
En þetta er alveg ljómandi.
Ljómar upp
12, rétt yfir meðallagi.
Ég hef nú róast talsvert, enda mikið að gera í skólanum og það útheimtir að ég eyði tíma mínum frekar þar en hér (slæmt að það sé ekki háskólagráða í Baggalútískum fræðum, kannski það ætti að skoða það).
Páskafríið og sumarið eiga kannski eftir að hafa jákvæð áhrif á innleggjafjölda minn.
Er þó enn efst Bagglýskra kvenna, sem er gott.
Vjer höfum verið alltof óvirkir hjer undanfarið Undirbýr hefndaraðgerðir gegn óvinum ríkisins sökum þess.
Það er rjett herra forzeti.
Ert ekki einu snni búinn að skála á Næturgeltinum í kvöld.Starir þegjandi út í loftið
Sýnir Vlad hvað klukkan er
Mér sýnist þín hafa ruglast á tímaferðalögunum.