Nú hef ég verið hér á gestapó í þrjár vikur upp á dag og var að skríða inn á topp 100 lista heimavarnarliðsins í baunum talið. Er það eðlilegt?
Nei það er langt frá því að geta kallast eðlilegt. Þú ert greinilega með sjúkdóminn á lokastigi og fátt sem getur bjargað þér,,,,,,nema að flytja til fjalla þar sem ekki er netsamband. Ég ráðlegg þér að leita hið snarasta til sálfræðings, atferlisfræðings, geðlæknis eða dýralæknis.
Það er líklega rétt hjá þér, flyt til fjalla ef þetta heldur svona áfram!
Ég get frætt ykkur um það að nú á að fara að koma upp netsambandi á hálendinu sem öryggisatriði fyrir björgunarsveitir. Svo þar fór það............
Þetta er grafalvarlegt, eins og hjá mér. Ég er á sjötta degi með 176 baunir. Svo ert ég á Top 124, reyndar númer 124 þar.
Ég gerðist að vísu sekur um baunasöfnun, en hef látið af þess háttar ómerkilegheitum.
Já, ég hef reyndar gerst sekur um að svara þráðum sem virðast tilvaldir í baunasöfnun, Hvað dettur þér í hug, Síðasti stafurinn sá fyrsti og fleiri slíka. Hef þó að mestu sleppt teningaspilunum!
Ég er hooked on Ásar.
Hörðu! En, erum við ekki aftur komnir í baunasöfnun?
Það er "betra" að safna baunum með þátttöku í leikjum heldur en að mjálma eingöngu.
Svo má alltaf ræða hvort gott sé að safna baunum baunana vegna.
Starir þegjandi út í loftið
Söfnun bauna er glæpur, innihaldslaust raus og gagnslausir leikir er vitleysa.
Já það er ljótt að safna bunum. Ég er að hugsa um að fara bara einu sinni á dag á Vísu dagsins og hvíla mig svo kannske á eftir á Einveruþræðinum.
Það var nú einhvernstaðar hérna þráður þar sem var rætt um meðal-innleggjafjölda Gestapóa. Ef þú finnur hann, láttu slóð að honum hingað fyrir okkur. (Sem og ég, ef ég finn hann.)
-
Ég skal taka mig á og hætta þessum söfnunum, þó ég hafi nú ekki gert það viljandi!
Söfnun bauna er glæpur, innihaldslaust raus og gagnslausir leikir er vitleysa.
Ég verð að vera sammála þessu, þ.e. að taka bara þátt í leikjum til að safna baunum. Ég hef nú samt tekið þátt í hinum ýmsu leikjum.
Var þetta ekki félagsrit albins?
Mikið rétt. Það var þá ekki skrítið að ég skyldi ekki finna þráðinn.
-
Svona til gamans, þá tók ég aftur saman smá static
Annarsvegar topp 10 og hinsvega nokkur sæti á leið að hundraðinu..
Læðist út
Þetta er aldeilis hressandi tölfræði. Þvílík tilviljun að meðalinnleggja fjöldi á dag hjá mér er jafn BMI gildinu mínu