— GESTAPÓ —
Eigið útlit
» Gestapó   » Kveðist á
GESTUR
 • LOKAР• 
Afbæjarmaður 26/5/05 16:17

Ég er ekki með vísu(r) í handraðanum, en er hálf illt í honum. Ég get á hinn bóginn, sem mér er líka illt í, ort eina vísu í hvelli, því ég er nýliði í baunauppskeru.

Allt er hold mitt æðabert,
úldið fésið gretta.
Flesta hefur guð minn gert
glæsilegri en þetta.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 26/5/05 20:54

Hornskelltur og heyrnaskertur
herfilega kiðfættur
aumu höfði eyrnamerktur
armur sundur tættur.

Eigandi Kaffi Blúts. • Lifi sannleikurinn!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 28/5/05 08:08

Mér varð á að seg ja: Ég heiti Skammkellfyrst þegar ég kom á Baggalút. Þessu breytti ég í Bölverk, en sá nú vísu eftir mig sem Skammkel undir nafninu [b]Afbæjarmaður[/b]. Sama er mér.

GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 11/6/05 14:05

Sko, það er maður hér sem heitir Skammkell. Krulli hefur eytt Skamkeli þínum því það er of líkt.

LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: